fimmtudagur, ágúst 17, 2006


Egill, þessi mynd er bara fyrir þig!! En þetta hlýtur að sleppa fyrst að ég er líka á myndinni:o) Ég veit að hundarnir virðast pínu kramdir, en þeim fannst þetta gott, í alvörunni! Eru svo miklar krúttibollur að vilja knúsast svona;oþ

Annars er þessi færsla bara af því að síðasta færsla átti að vera fyndin færsla en endaði svo bara á því að vera boring!! :-/ En ég ætlaði að byrja að blogga af því að ég var að skoða gamlar myndir, og minn herre gud ég var ekki með neitt eðlilega skakkt nef! Skil ekki af hverju ég létt ekki laga þetta lightyears ago! Mjög skrýtið að maður hafi ekki átt kærasta í 3 ár!! Reyndar kom það líka í ljós, eftir því sem ég skoðaði fleiri myndir, að sennilega var það ekki útaf skakka nefinu:-/ Það er sennilega innan við 1% af myndum þar sem ég er "eðlileg"! Á hinum er ég rangeygð, borandi í nefið, með tunguna útúr mér eða eitthvað annað svona heilbrigt! Og já, var líka að lesa gamlar færslur, túddúru, held að þetta með að gerast einbúakeddling útí sveit, með dýrin mín, sé bara ekkert svo slæm hugmynd..!

Vá þetta var nú aldeilis skemmtileg fæsrsla! Akkuru er samt körfuboltafólk ekki í sokkum? Þessir stuttu sokkar og síðu stuttbuxur eru bara ekki að gera mikið fyrir leggina! Var reyndar að horfa á NBA leik frá ´89 eða e-ð og þá voru sko stuttar, tight stuttbxur og háir sokkar, þannig að leikmenn virtust vera hátt í 5 metrar á hæð, en ég er ávallt hlynnt því að sýna soldið hold, ættli kkí væri til í að skoða það að taka upp svona old fashion búninga?? Þá myndi ég allavegna fara að leggja leið mína á fleiri körfuboltaleiki;oþ

Svo eru reyndar sumir þröngir íþróttabúningar sem eru andstæðan við sexy! T.d glíma, bara búningarnir einir og sér gera það að verkum að ég myndi ALDREI æfa glímu! Og reyndar fullt af öðrum ástæðum líka, en búningarnir jaðra við að vera ósiðsamlegir! Og blak, reyndar hljóta þessir búningar að vera mjög mótiverandi til að halda sér ávallt í topp formi, en þegar cellóið er til staðar þá er þetta íþrótt sem er með fráfælandi búninga (fyrir konurnar í íþróttinni, held að karlar fíli þá pottþétt! Reyndar sé ég ekki hvað er sexy við hoppandi cellolite en svona er smekkur manna misjafn;o)) humm, og eitthvað fleira, túddúru, öh man ekki í bili, reyndar man ég að fimleikabolirnir voru frekar óþægjó, skerast uppí rassinn og sonna, en þá hafði maður nú líka alveg body til að láta sjá sig í fimleikabol, good old days;oþ

Ætla að hoppa í beddann, later again...

Engin ummæli: