miðvikudagur, janúar 18, 2006

fílamaðurinn hvað??


Þetta var ábyggilega leiðinlegasta svæfing sem ég hef farið í, man ekkert eftir því að hafa sofnað:-/ Það sem er nebbla skemmtilegast er að reyna að halda sér vakandi þegar áhrifin eru að svífa á mann! But no, ekki núna sofnaði bara med de samme eftir að svæfingalæknirinn var búinn að ræða það að ég hlyti að æfa mikið þar sem blóðþrýstingurinn var 110/60 og púlsinn 56 (og telst nottla ekki hvíldarpúls þar sem þessar aðstæður óhjákvæmliega hækka púlsinn) en á meðan ég var að njóta hróssins byrjaði hann að tala um að Ingemar Stenmark (norskur skíðagöngugarpur, ef það er e-r sem fylgist ekki með skíðagöngu;o)) hefði verið með 25 slög í hvíldarpúls þegar hann var í sínu besta formi. Þannig að ég sofnaði með þá tilfinningu að ég ætti ansi langt í langt með að teljast í toppformi:-/ læknirinn reyndi að klóra aðeins í bakkann með því að segja að það þýddi samt ekki að ég væri ekki í góðum málum og e-ð blah blah, já nei nei, ef ég er með 125% hærri púls en Ingemar Stenmark, þá þýðir það einfaldlega að ég er ekki í nógu góðu standi:-/ hehe, best að velja sér raunhæf viðmið! Síðast var það Lance Armstrong og núna Ingemar Stenmark! Gott Bjarney *klapp á öxlina* Og svo ef ég þarf að peppa upp sjálfstraustið þá fer ég og keppi við 12 og 13 ára hnátur í hinum ýmsustu leikjum, þannig að ég kem sennilega út á sléttu;o)
En já, nef-læknirinn minn var búinn að segja mér að ég ætti að gera ráð fyrir að láta sækja mig um kl.13, ca. 3 tímum eftir aðgerð. Eva mín var svo elskuleg að vera boðin og búin í sjúkraflutningana þannig að við gerðum ráð fyrir þeirri tímasetningu. Svo var byrjað að pikka í mig um 11:30 og hjúkkan sagði að ég mætti bara fara þegar ég treysti mér til, þannig að ég nottla tók bara upp símann og sendi smess á Evu og sagði henni bara að koma þegar hún væri ready. Hún var komin eftir ca. 10 mín. og ég klæddi mig of gerði mig ferðbúna. Á leiðinni fram í afgreiðslu náði ég að draga fram debetkortið mitt en svo fékk ég bara þessu fínu byrjun á yfirliði og var drifin úr yfirhöfnunum og aftur inní rúm:-/ Eva var á meðan send í apótekið að sækja lyfin mín og grisjurnar en hjúkkurnar lögðu mig í rúmið kaldann þvottpoka á enninu. Mjög töff atriði..!
En svo gat ég staulast af stað þegar Eva kom aftur, fannst reyndar einkennilega mikið horft á mig en ef myndin sem ég ætla að reyna að lauma inn kemst til skila, þ.e.a.s ef bloggið leyfir, þá sjáiði kannski ástæðun! Og ef mér fannst nefið skakkt fyrir þá herre gud, er það búið að ýkjast um ca.7000% og stærðin e-ð að þenjast út, er ekki komin með nákvæmt flatarmál en fer í þá útreikninga vona bráðar;oþ


Og vá hvað safapressan er að gera gott mót núna! Finn hvort sem er ekkert bragð þannig að ég laumaði bara öllu holla draslinu í einn drykk og reddaði mér smá orku, er ekki alveg að höndla tilhugsunina um að borða e-ð núna:-/

Oj, mér er óglatt, verð að hætta, kem inn síðar með update;o)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er fallegt!:) hehe!!

Láttu þér batna og slakaðu nú á þarna ofvirkabrjálæðisbarn..;)

bjarneybje sagði...

ó haha, mér fannst þetta e-ð skrýtið, Ingemar hringdi fáum bjöllum þegar doksi byrjaði að tala um hann, auðvitað var það Bjössi beibí, nossarinn frægi, sem var nánast með engann púls! Auðvitað á að leiðrétta mann þegar maður segir svona heimskulegt..! ;oþ