Oh var búin að skrifa heillanga pistil sem ákvða að hverfa! Megininntakið var þetta:
*Ég varð veik í ofanálag við bakmeiðslin*Verð samt að jafna mig fyrir aðgerðina á miðvikudag, (sem, í 100. skipti, er ekki lýtaaðgerð! Fólk er stundum byrjað að hneykslast á mér fyrir að fara að láta lagið nefið á mér áður en það veit af hverju ég er að fara í þessa aðgerð! Vinstri nösin mín er nánast lokuð vegna skekkju í miðnesinu, miðnesið verður brotið upp og sett á sinn stað og ég mun geta andað eðlilega í framtíðinni..!:oD)
*Átti 2 ára bloggafmæli fyrir 3 dögum! Ótrúlega fyndið að lesa gamlar færslur frá mér, í einni af fyrstu færslunum er ég að tuða um að ég skilji ekki hvernig fólk geti bloggað á hverjum degi og jafnvel oft á dag! Hahaha, talandi um að skjóta sig í fótinn..!
*Nenni ekki að setja inn teljara þannig að þið verðið bara að vera dugleg að kommenta svo að ég sjái að hvort einhver nenni að lesa mig..! ;o)
*Uh og nenniggi meir því ég þarf að fara að sofa svo að ég vakni ó-veik á morgun og geti klárað helv... 11 km sem ég eftir í hálfmaraþoninu mínu (hengslaðist 3 km í dag þegar ég hélt ég væri bötnuð, komst svo að því að ég var það ekki neitt:-/ )
Bæbbli...
2 ummæli:
ég hef aldrei dottið í hug að manni gæti batnað af veikindum á hlaupabretinu, þetta er eitthvað nýtt lol
allavegna worth the try..! ;o)
Skrifa ummæli