mánudagur, janúar 16, 2006

myndir pyndir



Jæja, komu allavegna 2 myndir núna! Ég með ofursvölu skíðagleraugun, sem ég svo gleymdi í bílnum en það hefði verið mjööööög gott að vera með þau, hefðu nýst vel sem einskonar dulargervi! En reyndar sá ég bara apelsínugult með, ekki mjög töff að vera að "renna sér" í appelsínugulum snjó, þ.e.a.s ef það að standa á brettinu í 2-4 sekúndur í senn telst að renna sér..! Svo er þarna mynd af Magna í mjög kunnulegri stellingu, við eyddum fyrstu ferðunum svona, en hann var nú orðinn helvíti seigur svona undir lokin (til hliðar sést brettið mitt sem ég klæddi mig úr í fyrsta fýlukastinu:-/)

En ég ætla sko pottþétt aftur, ætla að verða góð á þessu helv... drasli! Held þetta sé nebbla rosa gaman ef maður stendur lengur en 3 sek. og getur beygt í báðar áttir!

Bakið er að koma til, verkurinn er reyndar við rófubeinið, vonandi er það bara af því að ég pomsaði svo oft á rassinn! En reyndar hefur þetta verið ágætis hnykkur, ekki oft sem ég finn e-ð til í bakinu....

nenniggi meir, kem aftur síðar...

1 ummæli:

Eva sagði...

Mér er líka illt alls staðar..... og með RISA marbletti á sitthvoru hnénu.... ekki gott ofan á brunasárið sem var þarna fyrir!! Það þýðir samt ekkert að kvarta... bara hlaupa verkina úr sér og skella sér aftur á brettið sem fyrst!!