Mér var skipað að taka því rólega í dag, en ég ákvað að það hlyti nú að vera í lagi að fara í lunch með Hafrúnu, mig langaði svooo mikið í Serrano fyrst ég er loksins farin að finna bragð aftur:oD Og fyrst ég var nú komin í Kringluna þá ákvað ég að fara í Heilsuhúsið og fylla á það sem mig vantar, og svo var hringt í mig og ég þurfti að fara að skipta um bíl. Búin að vera á sumardekkjum! Var viss um að ég væri á heilsárs, but no, mjög traust á sumardekkjunum í færðinni sem hefur verið uppá síðkastið:-/ En fékk grænann Yaris núna, mátti velja litinn, ákvað að vera gegt flippuð og fá mér grænann! Hehe;oþ Og eftir það, fyrst ég var hvort sem er á ferðinni þá fór ég að sækja Herbósendingu, og svo ákvað ég að fara að versla svo ég væri bara búin að því, var farið að vanta í grænmetis-og ávaxtabirgðirnar. En núna líður mér soldið illa, því ég held ég sé ennþá pínu lasin:-/ Ætla að prófa að leggja mig og sjá hvort ég batni ekki, magnað samt hvað ég get ALDREI hlýtt því sem læknar segja við mig. En ég er búin að fá ansi mörg tækifæri, ætla ekki einu sinni að reyna að vona að það muni nokkurn tímann breytast:-/
Svo fyrst ég er nú svona handboltaspekúlant (!) þá verð ég að segja mitt álit, mér fannst íslenska liðið spila frekar illa og mikið af mistökum EN mér finnst mjög jákvætt að spila illa en tapa samt BARA með 4 mörkum gegn Frakklandi, og þar sem þetta var æfingaleikur þá skiptir þetta minna máli heldur en leikirnir eftir viku. Get samt ekki vanist því að sjá Einar Hólmgeirs svona stórann og massaðann! Ég fór sko með þeim sem fararstjóri til Húsavíkur þegar þeir voru í 5.flokki og þá voru þeir bara svona lítil krútt sem ég var ca. með í vasanum, fjúff núna er ég bara orðin písl við hliðina á þeim:-/ Hey fyndið samt, gott ef Guðrún Drífa var ekki kölluð litla systir hans í handboltakvöldinu! Reyndar er hún litla systir hans en hún er samt eldri! Humm, já mjög handboltalegar vangaveltur. Held ég hætti bara að reyna að telja mig handboltaspekúlant:-/
Dísús, það var soldið fyndið þegar ég fór niðrí Nettó að versla. Það hefur sennilega verið hópferð af einhverju elliheimili, allavegna var þarna hópur af kotrosknu fólki sem umkringdi kælana með þorramatnum og svo voru allskyns diskussjónir um gæði hrútspunganna o.s.frv
Reyndar veit ég ekki hvort það sé hluti af masókismanum sem fólk vill meina að ég búi yfir, en mér finnst þorramatur góður! Allavegna hluti af honum, elska t.d kalda lifrarpylsu, súrt slátur og kæstann hákarl (mjög skrýtið að maður eigi ekki kærasta..!) en dísús, í gær sko kom mamma heim með hákarl og ég stóðst ekki mátið og fékk mér, og svo í eftirrétt þá fékk ég mér sun lolly, mjööög eðlileg samsetning..!
Nenniggi meir, ætla að leggja mig pínu, bæbbli...
4 ummæli:
Djö... er kallinn að standa sig!! Hendir út skyrinu þegar nær dregur, þ.e.a.s ef þú ætlar að vinn'etta!! ;oþ hehe, en ég er allavegna farin að sjá fram á prósentuna mína..! ;oD
er skyr óhollt?
Ég er alls ekki hlynnt mjólkurvörum, og myndi ekki setja skyr inn fyrir mínar varir nema miklar fjárhæðir væru í boði. En skiptar skoðanir eru á þessu, prófaðu þig áfram og lestur þér til, taktu svo þína eigin afstöðu út frá því. Það er það eina sem ég hef um þetta að segja;o) hef reyndar skrifað pistil um af hverju ég er á móti mjólkurvörum, en þú getur líka kynnt þér málið inná: http://notmilk.com
þ.e.a.s kynnt þér af hverju ég er á móti mjólkurvörum, svo geturðu (og ég hvet þig til þess) kynnt þér hina afstöðuna, þ.e af hverju maður ætti að innbyrða mjólkurvörur.
Fyrir mitt leyti finnst mér gallarnir fleiri en kostirnir(sem ég reyndar finn afar fáa, nema að skyr fæst í handhægum umbúðum)og því forðast ég mjólkurvörur (þó ég sé ekki fanatísk, fær mér smá ost á burritoinn minn, örlitla kotasælu í salatbakkann minn o.s.frv, en mjólk og skyr er e-ð sem ég reyni alfarið að forðast...)
Skrifa ummæli