
Humm já, Dóra vill meina að það lýsi mikilli desperassjón hjá mér í kallamálum að ég skuli dást að lærum ítalskra fótboltakalla(af því að það er líka mjög raunhæft að gera sér grillur um það!). En ég verð bara að vera sammála henni, jafn mikið og ég reyni (reyni og reyni sko) að finna álitlegan karlpung þá virðist ég bara ekki vera með taktíkina á hreinu! Ég nota allar aðferðir sem ég hef heyrt að séu vænlegar til ávinnings, t.d að vona hann sé einfaldlega til staðar uppí rúminu mínu þegar ég kem heim úr vinnunni kl.21 og leggst til hvílu eigi síðar en kl.22 (mikið svigrúm fyrir félagslíf á virkum kvöldum!) Einnig er mjög líklegt að sá álitlegi banki uppá dyrnar á sambýlinu þegar ég er að vinna þar um helgar, (á meðan sauðsvartur almúginn heldur að hann finni lífspartnerinn á djamminu!! Muwahahahah, hálfvitar! ;oþ) já, einnig er mjööööög líklegt að ég hitti einhleypann ungann pung þegar ég mæti í ræktina kl.8 á sunnudagsmorgni eða fer í labbitúra á fjöllum á austfjörðum um verslunarmannahelgi, þegar “eðlilegt” fólk á mínum aldri var rúllandi ölvað í brekkunni í Vestmannaeyjum (Ég og Heia sáum samt hreindýr fyrir austan:oD)! Já veistu Dóra mín, ég held þú hafir rétt fyrir þér..!
Dísús, eitt sem ég spái í oft og iðulega í þegar ég er að hlaupa. Af hverju eru ekki til svona rassahaldarar? Bara eins og brjóstahaldarar, það er t.d ógó vont þegar brjóstin skoppa (fæ líka illt í mín brjóst (svona samúðarverkir) þegar ég sé brjóstgóða konu, í greinilega ekki nógu góðum topp, hlaupandi í gúddí fíling á brettinu:-/) Ég líka nánast reyri mín niður þegar ég fer að hlaupa, hef meirsegja brugðið á það ráð að teipa niður brjóstin á handboltaæfingu þegar mér fannst toppurinn ekki alveg nógu tight! (Á maður kannski ekki að segja frá svona hlutum?? Hehe) en já, þetta með rassahaldarann, ég ÞOLI EKKI hafa rassinn skoppandi þegar mar hleypur:-/ Minn er nú reyndar heldur ekki sá minnsti í bransanum (innskot: barnið byrjað að gráta, nú fara eyrnatapparnir í! Ætla ekki einu sinni að bíða eftir því að parið hinu megin við vegginn byrji í “eróbikkinu”!) en já, risarassinn þegar ég hleyp, ég hef sko einu sinni hætt að hlaupa af því að mér fannst rassinn hossast of mikið og ég hafði ekki peysu til að setja utan um hann og fela ferlíkið:-/ En þetta er reyndar skárra ef ég er í soldið “stífum” buxum, finnst samt að þetta rassahaldara dæmi sé e-ð sem megi skoða, ég var jafnvel að koma með big time viðskiptahugmynd fyrir upprennandi hönnuð (Thelma, getur þú ekki hannað svona haldara fyrir kelluna?? ;o))
Verð að fara að sofa, bæbbli...
9 ummæli:
ertu búin að prófa einkamal.is? ;)
nei, þar sem ég er ekki á höttunum á eftir karlmanni þá hef ég nú alveg látið það eiga sig! Ef ég fer að verða desperate í alvörunni þá byrja ég bara að drekka aftur og skelli mér á djammið, hin rammíslenska taktík..! ;oþ
Sjiii - hvað ég er sammála þér, mig hefur OFT vantað rasshaldara. Eee - eiginlega í hvert skipti sem ég hleyp. Ég vona bara að fólk sé ekki mikið að fylgjast með bossanum þegar hann fer af stað hjá mér og reyni að einbeita mér að því að hlaupa!!
Tekst stundum og stundum ekki! ;)
Á ég að rétta þér tissjú??? leggðu þig bara eftir því að ná í einhvern góðan gaur og þá er það ekkert mál. Myndarleg einsog þú ert, með lítinn og sætan rass, þá ættirðu ekki að eiga í neinum vandræðum með þetta. Annars er síminn hjá Stulla.... :)
Jeminn ertu að snappa.. sæta jú að teipa niður brjóstin er afragshugmynd haha og er ég nú ekki með minnstu helv jullurnar... ég væri ekki á móti því að reyra þetta niður og hvað þá my big butt.. en hon ertu hætt að þjálfa...
Hronnsla
Dísús, ég var að spá í að eyða út þessari færslu til að opna ekku gluggann fyrir umræðu um mína kallamál! Ég er ekki að væla, ég er ekki að leita og ég hef það betra en nokkru sinni on my own! Kannski kemur að því að mig langi í fjölskyldu eða eitthvað, þegar/ef að því kemur þá mun ég bera mig eftir björginni! ;oþ
Nei Hrönn, ég er ekki hætt að þjálfa, var nottla frá alla síðustu viku útaf aðgerðinni og svo skrepp ég stundum frá seinnipartinn til að þjálfa handbolta...
Hahaha, þú varst eiginlega að grafa þína eigin gröf með því að starta þessari karla-umræðu;) og góða besta, þú að tala um að þurfa "rassa-niður-teipingu"... er ekki alltílæi meðððig!!!
Nei þú átt ekki að segja frá þessu lol.
Not need to know information, lol
Og ég sem hélt að það væru bara kk sem hefðu gaman af skokkandi kvk rössum svona almennt. Sem sagt stærðin skiftir máli hehe (þessi allavega.
Stattu þig stelpa í kaggla málunum á þinn máta...sumar fara oft á djammið og enda svo með einhverjum gaur sem er alltaf á djamminu og verða svo hissa á því að gaurinn sé meira en minna fyrir sopann...meina hættir að fara á djammið og fer bara að drekka heima hjá sér í staðinn!!!! Meina ætti ekki að koma þeim á óvart...skal lofa að minnast ekki á þinn "stóra rass" þó ég rækist á hann einhverstaðar utandyra á skokki...vona þó að þú sért ekki að meina að hann sé alltaf einu og hálfu skrefi á eftir þér í skokkinu.
Ef þér líkar ekki að ég sé hér að þvælast .....ég bara varð, þakkaðu KiddaBé ég er oft á síðunni hans og hann fór eitthvað að tala um þig og þitt karlaleysi hehe...nb ég bý einn með minni dóttur 15ára og það er NÓG í bili af kvk inni á mínu heimili....eða þannig.
Gangi þér svo bara vel á öllum vígstöðum í sportinu.
Skrifa ummæli