mánudagur, janúar 23, 2006

nýir æfingafélagar o.fl


Tók fína æfingu í morgun með nýju æfingafélögunum (sjá mynd) og allt í gúddí:oD Hef meirsegja verið spurð að því hvort ég hafi hætt við aðgerðina því það sést ekkert á nebbanum! Nema að ég er með saum inní til að sanna það, og nottla beint nef;o) Svo er reyndar líka annað sem kom í kjölfar aðgerðarinnar, og það er að nefbroddurinn er orðinn ansi hreyfanlegur!! Hreyfist til hægri og vinstri svona eins og uggi á fiski! :-/ (sko, ef ég reyni, þarf að virkja nefvöðvana, en þá líka halda mér engin bönd, hef reyndar ekki prófað að setja bönd á nefið, ætti kannski að prófa það og ath. hvort nefbroddurinn hætti að hreyfast) Vona samt að þetta sé bara e-ð sme eigi eftir að gróa saman..!

Dísús, ég hef svona verið að spá í að kaupa mér íbúð fljótlega, og þar sem ég er ekki að ljósrita peninga hérna heima hjá mér þá er ansi líklegt að fyrsta íbúðin mín verði staðsett í blokk. Sem er alveg allt í lagi ef maður fær ekki nágranna frá helvíti! Það er t.d algjört gerpi sem býr fyrir ofan mömmu og pabba, tekur kannski uppá því að byrja að spila tónlist í botni kl.4 á virkum nóttum, og er alltaf með vinum sínum niðrí kjallara að reykja. Og svo þorir enginn að kvarta yfir honum því hann gæti tekið upp á því að hefna sín á t.d bíl viðkomandi, alveg steiktur gaur sko, með mjög svo bjarta framtíð! *hóst* Og svo kemur barnsgrátur alltaf á svipuðum tíma á kvöldin, en það stendur yfirleitt stutt yfir og er bara krúttlegt því þetta er greinilega frekar nýtt barn. Er með ofnæmi fyrir svona frekjugrenji í krökkum sem eru komin með smá vit! Og svo til að toppa allt í gærkvöldi (í sambland við gerpið og barnsgrátinn) þá var fólk í heimaleikfimi bara ca. hinum megin við vegginn hjá mér! Jafnaðist greinilega á við hinn besta eróbikktíma ef marka mátti stemninguna! Enda fór ég líka í apótek áðan og keypti mér eyrnatappa, mér finnst ég einum of involveruð í einkalíf nágrannanna:-/

Nóg í bili, eyrnatappinn out...

4 ummæli:

Eva sagði...

Frábært að aðerðin tókst vel - ég bið að heilsa S.J. þegar þú hittir hann næst ;)

bjarneybje sagði...

hehe, skila því, fer til hans á fimmtudag að láta taka sauma;o) Ekki samt segja honum að ég hafi byrjað að æfa strax:-/

Eva sagði...

ég lofa því!!!

Anna sagði...

oh my gad.. er þetta virkilega maður þarna á kantinum til hægri???