
Var að koma frá doksa, eruði að grínast með magnið af grisjum sem hann tók útúr nefinu á mér?? Það sem hefur samt verið verst við þessa aðgerð, er að mér tókst að verða veik oní hana:-/ Ekki mjög þægilegt að vera hnerrandi með grisjufullt nef, og svo fékk ég verstu hálsbólgu sem ég hef á ævinni fengið, en þá nottla var hálsinn líka sár fyrir eftir öndunartúbuna sem ég var með í aðgerðinni þannig að bæði hálsinn og nefið var mjööööög stíbblað, svaf sem sagt ekkert sérstaklega vel í nótt! Það er nú ekki oft sem ég verð veik, frábær tímasetning að taka uppá því núna. Læknirinn sagði meirsegja að ég væri með hita, veit svo sem ekkert hversu mikinn, ég mæli mig aldrei þannig að ég veit ekkert hvort ég fái einhverjar nokkrar kommur til eða frá. Mér finnst það líka varla teljast að vera veikur þegar maður er með 0.2-5 kommu hita. En hvað veit ég, kannski líður fólki geðveikt illa með 37.3 kommur. Ætla að athuga hvað ég er með, sjá hvort ég hafi ástæðu til að láta mér líða illa...
Humm, mældi mig þrisvar og fékk alltaf út 36.2 gráður, reyndar er mitt venjulega hitastig 36.8 (kom allavegna alltaf hérna í den), sennilega er mælirinn bara e-ð bilaður, ég er bara með einhverja bévítans kvefdrullu. En ef við tökum Pollýönnu á þetta þá er ágætt að taka það út núna fyrst ég er hvort sem í veikindafríi;o)
Uh, annars hef ég ekkert mikið annað að segja, greyið Óskar Dagur var eiginlega passarinn minn í morgun, ég var alveg off:-/ Honum fannst samt ótrúlega spennandi að horfa á mig skipta um umbúðir, og var mættur á svæðið með allar grisjur og plástra sem hann fann og tilkynnti mér það svo að hann ætlaði að verða lækningamaður. En hann er svo mikill engill að ég lá bara eins og slytti í sófanum á meðan hann dundaði sér eitthvað eða dansaði með Dýrunum í Hálsaskógi. Ég átti reyndar erfitt með að halda í mér hlátrinum stundum, og það var ekki mjög þægilegt að hlæja, en að öðru leyti gekk þetta bara fínt...
Og Eva, ég má byrja að æfa eftir viku:oD Læknirinn sagði það, hann sagði að ég væri greinilega mjög fljót að jafna mig, en mætti ekki reyna á mig andlega né líkamlega næstu vikuna. Ég lofaði að ég myndi forðast það að lenda í áfalli! En þá átti hann nú frekar við að ég ætti ekki t.d ekki að sitja fundi þar sem manni gæti orðið heitt í hamsi. Eins gott að ég haldi þá ró minni á landsleiknum á laugardag! Langar að fara í kvöld, eeeen held það sé ráðlegra að sleppa því...
Vá langt og innihaldslaust blogg, farin....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli