
Það er algjörlega óþolandi þegar maður fer til læknis að það er regla frekar en undantekning að maður þarf að bíða eftir að komast inn! Var að fara að láta taka sauminn úr nebbanum og var búin að bíða í 50 mínútur (átti eftir að vera mætt annað eftir 10 mín), þá stóð ég upp og byrjaði að spjalla við ritarann, ætlaði að fá símanúmerið hjá doksa og bara hringja í símatímanum hans, ætlaði nebbla bara að taka fjandans sauminn úr sjálf (hef oft tekið úr mér sauma, það er ekkert mikið mál. Kannski ekkert sérstök staðsetning þarna í nefinu, en ég hefði alveg reddað mér) En þá akkúrat kom hann fram og ég á spani á eftir honum, samt kannski ágætt að hann náði í skottið á mér því hann náði að hreinsa líka soldið af blóði úr nebbsa, og hann hló bara þegar ég sagði honum að ég ætlaði að taka þetta sjálf. Sagði samt að sennilega hefði ég nú alveg getað það:oD Og svo blaðraði ég líka af mér að ég hefði byrjað að æfa á 3. degi:-/ Hann hristi bara hausinn og hló aftur, sagði að ég væri í svo góðri þjálfun að ég væri mjög fljót að ná mér eftir svona smá krukk. Svo byrjaði hann að tala um hvað ég væri í góðum málum, þegar ég væri orðinn sextug og jafnöldrur mínar að brotna við minnsta hnjask, þá myndi ég sko standa það af mér! :oD Svo reyndar bætti hann við:”þ.e.a.s ef þú verður ekki búin að eyðileggja liðina í þér...” Skil ekki alveg hvaða skítakomment það var sko! Hehe, reyndar veit hann af brjóskeyðingunni í hnénu, og að ég sé soddann þjösnari, þannig að kannski var þetta alveg skiljanleg athugasemd:-/ en já, á svo að fara aftur eftir mánuð og þá getur verið að hann skeri í burtu smá brjósk, en ég veit ekki alveg hvernig það fer, ég lýsti yfir áhyggjum af því að nösin yrði kannski of stór ef við færum út í það:-/ en hann hló bara að mér, aftur..!
Annars er ég mjög traust, fer að vinna 6-8 í fyrramálið og legg svo af stað til Akureyrar 8:30 og er ekki byrjuð að pakka:-/ Er ekki einu sinni byrjuð að hugsa um hvað ég þarf að taka með! Klikkaði reyndar á crucial atriði, náði ekki að halda foreldrafund og plata 1-2 foreldri með mér, þannig að ég verð einnig sérleg barnapía í ferðinni! Reyndar verður ein mamman fyrir norðan sem ég ætla að reyna að notfæra mér svo ég geti allavegna farið í ræktina 1-2x, en annars held ég reyndar að ég sé með einstaklega góðann hóp, verður ekki mikið mál. Samt klaufaskapur að klikka á þessu, væri næs að fá að vera BARA þjálfari;o)
Jæja, ætla að fara að gera mig ready, þarf líka að fara í apótek og kaupa sjúkradót og svo ætla ég að fá mér svona púða um hálsinn og svefndót yfir augun, tek svo með mér eyrnatappana og þá ættu rútuferðirnar að verða bærilegri..! ;oþ (á myndinn eru ég og Heia einmitt að nota sömu taktík, þetta var um verslunarmannahelgina og það var svo bjart inní herberginu, þarna notuðum við svokallað homemade augnsvefndót;o) En því algjörlega óviðkomandi, nokkrir hafa beðið um mynd fyrir aðgerðina, en t.d á þessarri mynd sést skekkjan nokkuð vel, enjoy the view;oþ)
Gotta go, svo ég nái nú að sofa oggupons líka...
2 ummæli:
Dem Bjarney ég þarf að ná á þig...
hvað er msnið þú getur hent á mig meil eða inn á blogginu...
kv
hronnsla
vá.... ég var einmitt að spá í þegar ég sá myndina (og átti eftir að lesa textann) hvort að ég ætti að þora að segja þér að hann Siggi hefði klikkað aðeins á aðgerðinni...... púff!!
Skrifa ummæli