Doksi hringdi í dag, ég var búin að gera ráð fyrir að mæta í aðgerð um 12-leytið, sem hefði þýtt að ég mætti borða um kl.5-6 og því ætlaði ég að þjálfa til kl.11, en aðgerðin er kl.10 og ég á að fasta frá miðnætti. Þannig að ég cancelaði allri þjálfun, fannt skelfileg tilhugsun að vakna rúmlega 5 og mega hvorki fá vott né þurrt til kl.10:-/ Og kúnnarnir mínir voru afskaplega skilningsríkir, vita kannski að þeir eru betur settir án mín í grump-svengdarkasti! Ef það líða meira en 3 tímar milli máltíða hjá mér þá upplifi ég það sem hungursneyð og skapið fer alveg út um gluggann:-/ Hey, en ég var að hugsa, kannski er það rétt sem Orri segir um geðhvarfasýkina! Var að sunnudagsfærslurnar, og ég fór frá því að vera nánast grenjandi af pirringi og fýlu um morguninn yfir í að vera grenjandi úr hlátri um kvöldið! Ætli það sé eðlilegt að skipta bara um sköp sí svona??
En já, er orðin sybbin, át yfir mig af lasagne-anu sem ég ákvað að fá mér í tilefni föstunnar;o) og skyndilega finnst mér það ekkert slæm hugmynd að borða ekki næstu 14 tímana (sem var einmitt tilgangurinn með að borða mikið, hata að vera svöng:-/) ætla að fara að lúlla, takk fyrir fallegu “gangi-þér-vel” sms-in sem hafa verið að detta inn og ég vona að þið hafið smá tíma aflögu (allavegna þeim sem er umhugað um minn hag) og sendið mér happy thoughts upp úr kl.10;o)
Góða nótt....
2 ummæli:
Hei kjuti...
Gangi ter vel...
kv
hronnslan
Jæja hvernig fór svo?? Ertu ekki örugglega komin með "gleraugu" og skemmtilegheit? Vertu hress sem allra fyrst.
Skrifa ummæli