sunnudagur, janúar 15, 2006

Málið dautt, ég verð hér.!

Held mig hérna, þannig að nú verður fyrsta alvöru bloggið á nýrri bloggvígstöð:oD

Dísús, við skelltum okkur sem sagt á snjóbretti first thing in the morning! Ég lenti strax í vandræðum því ég er svo misfætt að ég vissi ekkert hvort ég vildi hafa hægri eða vinstri fótinn fyrir framan! :-/ Þetta skapaði líka ákveðið vandamál þegar ég var í fimleikum, ég var hvorki rétt- né örvfætt, var bara sitt á hvað með lappirnar! Á meðan ég var að bögglast með hvort ég vildi venjulegt bretti eða goofy bretti (eins og örvfættir nota) þá skellti Magni sér 2-3 ferðir í barnabrekkuna en ég reyndar byrjaði að beila á lyftunni! Þorði ekki að taka sénsinn á að láta lyftuna draga mig á maganum alla leið upp:-/ Svo eftir að ég var búin að renna hálfa ferð í barnabrekkunni og Magni búinn að stinga mig af (honum er reyndar fyrirgefið því hann stakk mig af af því að hann gat ekki stoppað!) en ég var orðin svo geðveikt pissed á að vera ekki að ná þessu (þolinmæðin að drepa mig!) að næst þegar Magni fann mig þá var ég í röðinni á skíðaleigunni og ætlaði bara að fá mér skíði! Hann talaði mig til (ekki spyrja mig hvernig mér datt í hug að láta tilleiðast!!) og dró mig með sér í stólalyftuna! Hitt reyndar Evu (Albrechts) og Hrönn (FH-ingur með meiru!;o)) efst í brekkunni og þær sennilega mjög ánægðar að sjá mig í grumpkasti dauðans:-/ (Ég var í alvörunni svo pirruð á tímabili að ég var með tárin í augunum! Ef ég hefði verið nokkrum árum yngri þá hefði ég sennilega verið byrjuð að stappa niður fótum og allt!) En ég nottla datt nokkrum sinnum á fyrstu 10 metrunum, pompaði ýmist fram eða aftur fyrir mig. Svo reyndar einu sinni komst ég á ágætis ferð, tók svo ansi laglega magalendingu og lappirnar skutust upp í loft og hryggurinn fór í góða fettu:-/ Eftir það var ég ekkert jafn mikil hetja og ca.3 mín. síðar klæddi ég mig úr brettinu og labbaði niður restina af helv... fjallinu! Massa svöl..! Og lagði snjóbrettið á hilluna í kjölfarið! En bara tímabundið, ætla að fara aftur, helst með einhverjum sem kann þetta og kannski þar sem er ekki alveg jafn mikið af fólki, ekki mjög töff að vera 26 ára á maganum í barnalyftunni:-/

Þegar ég kom svo í bæinn þá ákvað ég að fara og standa við þetta maraþonmarkmið hjá mér og Evu (Halldórs), (en ég hleyp bara hálfmaraþon þar sem ég hef bara 3 daga) og ég held ég hafi aldrei verið jafn lengi að skokka 7 kílómetra:-/ greinilegt að þetta litla snjóbrettastúss mitt sat samt aðeins í mér! Fór svo til Óskars Dags eftir það, því ég var búin að lofa litla dýrinu að fara með hann á snjóþotu fyrst ég gat ekki tekið hann með í Bláfjöll. Vá hvað krökkunum í brekkunni fannst ég samt skrýtin, ég hló svo mikið að tárin byrjuðu að streyma! Þetta var sennilega svona had-to-be-there dæmi, en ég var alltaf að reyna að láta hann stökkva en snjóþotan sveigði alltaf frá á síðustu stundu, en svo fórum við saman og náðum einu stökki. Sem var reyndar ekki mjög þægilegt því svona snjóþotur eru ekki gerðar fyrir tæplega 27 ára rassa:-/ Borðaði svo Ningsara með Huldu, Hauki og Óskari Degi, er núna komin upp í rúm og vá hvað verður ljúft að sofna, búin að innbyrða ansi mikið af fersku lofti í dag, sweeeeeeet :oD

Bæbbli...

Engin ummæli: