Fór á landsleikinn á áðan, magnað hvað jákvæð umfjöllun fjölmiðla hefur mikil áhrif! Mjög erfitt að fá stæði og pakkað út úr dyrum, tókum t.d mjög töff Austin Powers atriði á leiðinni af leiknum! En það sem stendur uppúr í þessum leik er: “Hólmgeirsson, mér finnst þú eiginlega meira scary svona live!!” Yfirleitt finnst mér nebbla fótboltakallar alltaf svo miklir tittir live, þrátt fyrir að virðast vera með vott af vöðvum þegar mar sér þá í sjónvarpinu (en yfirleitt er fituprósentan bara svo lág að það eru beinin að gægjast út fyrir!) en mér finnst það öfugt með handboltakalla, mér finnst þeir vera meiri buff í alvörunni heldur en í tellíinu. Annars nenni ég ekki að ræða um leikinn, get reyndar talið upp laglegustu fótleggina en þá gætuð þið haldið að ég hafi meira fylgst með því en leiknum! (wonder why?? ;oþ)
Hvað er málið með Evróvisjón? Ég er reyndar ekki mikill aðdáandi íslenskrar tónlistar, en það mætti halda að það sé eitt af skilyrðum þess að vera með í Evróvisjón að lagið sé svo leiðinlegt að maður íhugi virkilega hvort maður eigi að láta sig gossa fram af svölunum! (reyndar bý ég á annarri hæð þannig að skaðinn yrði sennilega ekki mikill, en ég væri allavegna “making a statement”! Sem ég veit reyndar ekki hvort að hefði e-r áhrif, but it´s worth the try! Kannski verður þá reglunum breytt á næsta ári og ein klásan verður svohljóðandi:” Eitt af skilyrðum þess að lagið hljóti inngöngu í forkeppni Evróvisjón er að það sé ekki það leiðinlegt að sjálfsvígshugsanir læðist að fólki, eða sjálfsvígshugsanir er kannski full djúpt í árina tekið, allavegna ekki það leiðinlegt að fólk vilji frekar skaða sjálft sig (t.d með því hoppa fram af svölum (þó það sé bara af 2.hæð!), berja hausnum síendurtekið við vegg, setjast á kaktus o.s.frv). heldur en að hlýða á lagið, einnig skal lagið lúta þeim skilyrðum að vera sungið á táknmáli”
Já, mér finnst þetta bara alveg hreint ágætis reglugerð...
Dísús, er sko að koma mér almennilega fyrir (tími til kominn!) og ákvað að gera smá rassíu í fataskápnum mínum, gefa það sem ég hef ekki notað s.l ár eða svo, í hjálparstarfssemi, og það sem ég hef komist að er að ég á ógeðslega mikið af fötum, mjög mikið af skóm og engin sexy undirföt! Veit reyndar ekki hvað þetta með undirfötin kemur málinu við, en engu að síður finnst mér það athyglisverð staðreynd! Það böggar svo sem engann að ég sofi í einstaklega ósexy bómullarömmunaríum, en það væri kannski ráð að eiga svona “brjótist-í-neyð” kassa ef það skyldi hlaupa á snærið hjá manni fyrir fertugt..!
Oh jæja, ætla að halda áfram í tiltektinni, veit þið eruð eflaust að öfunda mig af einstaklega spennandi laugardagskvöldi(!) en þetta er samt eini tíminn sem ég hef til koma stöffinu mínu fyrir og svo er líka smá bókhaldsvinna sem ég hef verið að trassa:-/
Ætla að koma mér að verki, bæbbli....
4 ummæli:
Hahaha, góður tími til að taka til...laugardagskvöld;) en vá! sammó með Júróvisjón, úff púff! ekki alveg í takt við tímann!
hahahah, góður tími til að hanga á netinu!!!
hehe, nei djók, er ekkert svona bitur;o) ég hef bara ekkert mikinn annann tíma í lífinu til að take care of þessi mál sko..! :-/
En ég valdi mér þetta víst sjálf, vinna framyfir félagslíf, can´t have it all beibí! ;oþ
Hahaha, ég var sko ekkert að hanga á netinu... ;) en ég valdi frekar að fara í bíó og skilja herbergið mitt eftir eins og eftir sprengju þetta laugardagskvöldið;)
æ, gleymdi að skrifa nafnið... Dóra
Skrifa ummæli