oh ég er svo geðveikt fiktin! Var að fikta í nebbanum, hélt ég væri með storknað blóð og ætlaði að hreinsa það, en endaði á að kippa úr einum saumi:-/ En það er allt í lagi, ég er hvort sem er svo mikið krútt með svona bréf í nebbanum..! ;oþ
Annars er þessi aðgerð eiginlega verri eftir á heldur en hin, núna er ég með 4 sauma (eða reyndar bara 3 en þeir eiga að vera 4) og í vissum svipbrigðum þá rífur í saumana. En það eru samt eiginlega bara grettusvipirnir sem eru vondir þannig að ég þarf bara að hemja mig aðeins í þeim.
Hey já, uppá síðkastið er ég endalaust að heyra frá fólki að ég sé ofvirk og þess vegna langar mig að biðja ykkur gott fólk um að taka þátt í smá tilraun!
Tilraunin gengur sem sagt út á þetta: "Ekki reykja, ekki drekka, borðið hollt, takið vítamín, farið snemma að sofa og ekki eiga nein líkamlega samskipti við hitt kynið (eða sama kyn, fer nottla eftir því með hvoru liðinu þið spilið;o))" og kannski allt í lagi að bæta við, ekki eiga börn, maka né heimili sem þarf að sjá um (nema kannski bara að setja í/taka úr þvottavél og vaska upp stöku sinnum!) . Kannski erfitt að losa sig við börnin en þið getið allavegna dömpað makanum! hehe;oþ
Gerið þetta í minnst 2 vikur (getið svo rétt ímyndað ykkur hversu mikla orku maður hefur aflögu eftir marga marga mánuði í samskonar aðstæðum!) og ég skal lofa ykkur því að þið verðið farin að æfa minnst tvisvar á dag! Þetta er engin ofvirkni, heldur bara eðlileg orkulosun m.v aðstæður! Ok ég skal viðurkenna að það er skrýtið að fá skyndilega löngun til að gera armbeygjur eða standa á höndum (og actually framkvæma það ef aðstæður leyfa!) en það er það eina sem ég skal fúslega viðurkenna að sé út fyrir normið..!
Gotta go...
6 ummæli:
Djöfull er ég sammála tér!!!! eitthvad verdur madur ad gera vid orkuna fyrst ad hún fer ekki í tad ad hugsa um heimilid og fjölskylduna! og hahaha, gott ad ég er ekki sú eina í verden sem allt í einu stend á höndum í auglýsingahléi ;) puss og kram frå Sverge
Humm þá er þetta kannski ekkert svo óeðlilegt!! Eða jú sennilega, ágætt samt að vita að það eru fleiri í ruglinu;oþ
puss og kram tilbaka;o)
Ég er að spá í að sleppa þessari tilraun ef þér er sama litli álfur :) Langar ekkert að það birtist baksíðufrétt í DV "einkaþjálfari í Sporthúsinu hálsbrotnaði við að reyna að standa á höndum".
Það er ekkert víst að þig langi endilega að standa á höndum, en þörfin til að hreyfa sig MIKIÐ mun knýja að dyrum við þessa tilraun..!
Verður þú ekki að hætta að bora í nefið. Sumum finnst það ooojjj :)
Já ég veit það er soldið grós sko, en þegar mar er með storknað blóð í nebbanum þá er bara fáránlega erfitt að láta það vera:-/ En ég er geðveikt að reyna að hemja mig..!
Skrifa ummæli