miðvikudagur, mars 22, 2006

nei nei ekkert hætt...

Þabbara pressa á manni! En nei ég er ekki hætt að blogga, er bara eitthvað löt í lífinu þessa dagana:-/ Allavegna hérna á bloggvígstöðvunum. Sennilega af því að það er EKKERT að frétta, svo sem ekkert öðruvísi en fyrri daginn, en samt einhver lágdeyða í gangi í kálhausnum..!

Nema reyndar það teljist fréttnæmt að Eva FYRRVERANDI uppáhalds nemandinn minn var svooooooona (*gera hendur með*) nálægt því að vera rekin úr þjálfun áðan! Haldiði að gerpið hafi ekki skvett vatni á mig eftir að æfingu lauk! Reyndar er Eva ein af fáum manneskjum sem mig langar stundum í alvörunni til að lemja (þetta er svona love/hate samband), læt sjaldnast verða af því, en nú gekk hún of langt og ég ætla svo sannarlega að lemja hana í öxlina á næstu æfingu! Reyndar er smá forsaga fyrir skvettuna, EN ekkert sem réttlætir þessa hegðun hennar! Þannig er mál með vexti að ég byrjaði æfinguna á nokkrum laufléttum bröndurum, sem er nottla minn aðall í þjálfuninni (!) en svo kom að því að hún ætti að byrja að taka á því. Hún heimtaði hvatningu og ég nottla varð við þeirri beiðni hennar! Hún var í upphífingum og ég setti mig í stellingar og kallaði afar hvetjandi:"koma svo, hífðu þig upp hlunkur!" Eitthvað fór þetta nú illa í hana (skil nú ekki alveg af hverju??) og ég reyndi að bæta það upp með því að gera svona stafahvatningu, s.s setti líkamann í stafina á nafninu hennar og hrópaði hástöfum:"Gef mér E, gef mér EFF, gef mér A" Gerði reyndar smá stafsetningavillu þarna í miðjunni, kallaði óvart F (en líkaminn gerði Vaff!) og eitthvað fór þessi stafsetningavilla mín illa í hana (aftur!) og það endaði þannig að hún rak mig út í horn á meðan hún kláraði!
Svo fékk ég nú að koma inn í þetta hjá henni aftur, en svo batt hún endahnútinn á æfinguna með vatnsgusunni eins og áður segir. Er það nú þakklætið fyrir að maður sé að fórna sér í hvatningunni..!

Ætla heim að lúlla, skal fara að standa mig aðeins betur hérna í þessu bloggedíbloggi, later...

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rosalega skil ég þessa Erlu vel. Hefði sjálfur tæmt úr brúsanum yfir þig. ;)

bjarneybje sagði...

Hún heitir reyndar Eva, en nei þetta var sko algjörlega óskiljanlegt! Ég er aldrei neitt nema almennilegheitin við hana..! ;oþ

Nafnlaus sagði...

Enn og aftur kemur frásögn þín af atburðum gærdagsins ekkert á óvart. Þessi hæfileikar þínir til að segja satt og rétt frá eru með afbrigðum; þú ert eins og gangandi sannleikskorn. Usss...

Fyrirgefðu að ég skvetti yfir þig úr brúsanum, þú áttir þetta sko alls alls alls ekki skilið. Alls ekki.

Nei, í alvöru, fyrirgefðu. Ha!??

The Hlunk.

bjarneybje sagði...

Eva mín, auðvitað fyrirgef ég þér. Er hvort sem er vön því að þú látir skapið hlaupa með þig í gönur og ég ber fullann skilning á því að það að hemja skap þitt er stórt vandamál í þínu lífi. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af öðru en að ég styðji þig fyllilega í baráttunni gegn reiðipúkanum, jafnvel þó það það þýði að þú látir það bitna á mér stöku sinnum. Ég meina, what are friends for??

Eva, þú veist ég elska þig, bara passa gönurnar;oþ

Nafnlaus sagði...

Akkúrat Bjarney, ég get sko lært mikið af þér og þínu jafnaðargeði - það held ég nú.

Þakka stuðninginn, hann er ómetanlegur. Ég er loksins öll að róast eftir átök gærdagsins.

Eva

Nafnlaus sagði...

Skelfilegt þegar að maður er orðinn svona gamall að maður getur ekki einu sinni lesið rétt það sem stendur, hvað þá munað það ;) Er þetta ekki bara svipað og þegar að þú ert með á æfingum hjá stelpunum sem þú þjálfar. Spennustigið verður stundum bara of hátt og þá gerist bara eitthvað......