sunnudagur, mars 26, 2006

Sweeeeet helgi að baki

Á hverjum einasta sunndegi sannfærist ég enn frekar um það að sú ákvörðun mín, sem tekin var fyrir tæpum 2 árum, að hætta að drekka áfengi sé besta ákvörðun lífs míns! Helgin öll reyndar búin að vera rosa fín, var að vinna til kl.14 í gær, fór svo að horfa á Valstelpurnar vinna Haukana og bauð einum sambýlismanninum mínum með. Er ekkert smá ánægð með hann, hann er skyndilega orðinn gallharður Valsari:oD Spilar sennilega inní að ég fer alltaf með hann eftir leiki (eða samt bara sigurleiki, fólk yfirleitt ekkert í skapi til að spjalla eftir tapleiki!) og heilsa uppá leikmenn og hefur hann bæði fengið að hitta karla- og kvennaliðið og leiðist það sko ekki, sérstaklega ekki þegar hann fær að knúsa stelpurnar! ;o) Svo er Valsliðið líka með eindæmum myndarlegt þannig að það er allavegna ekki að spilla gleðinni! ;oþ

Eftir leikinn fór ég aftur í tvíbura"pössun", hjálpa tvíbbamömmunni aðeins þar sem þetta er heavy vinna að vera með tvö svona lítil! Þeir eru orðnir 3 mánaða og verða bara sætari og sætari! Það er samt eitt sem ég skil ekki, af hverju fær maður (eða allavegna fæ ég solleis!) svona þörf til að KNÚÚÚÚÚÚÚÚSA lítil börn og dýr geðveikt FAST?? Þó ég geri það nottla ekkert, þessir litlu líkamar myndu sennilegast ekki þola það! En furðulegt samt að fá svona KNÚÚÚÚÚÚÚS-tilfinningu...

Humm já, aftur af því af hverju ég ELSKA að drekka ekki! Dagurinn í dag er búinn að vera sniiiiiiiiiilld:oD Byrjaði daginn á æfingu með Magna uppúr kl.10, fór svo á Nings að næra mig, stússaðist svo smá og svo bauð einn kúnninn minn með sér í baðstofuna í Laugum (sárabót fyrir að taka mig ekki með til Kanarí!). Æfðum aðeins fyrst (samt ekkert aðeins, er strax farin að kvíða harðsperrunum sem ég kem til með að fá:-/) og svo var það baðstofan í tæpa 2 tíma, það var ekkert smá sweeeeet! Fullt af gufum, var mönuð í kalda sturtu (og þar sem ég er mesta kuldaskræfa EVER þá var þetta sko challenge! En ég skoraðist nottla ekkert undan, get ekki látið það spyrjast út að ég sé chicken! ;oþ) og svo var rúsínan í pylsuendanum að leggjast í Lazy boy inn í slökunarherbergi, þar sem ég náði ábyggilega mestu slökun sem ég get náð, svona næstum því sofandi en ekki samt alveg og bara gegt máttlaus í líkamanum! Entist reyndar ekkert rosa lengi, allavegna ekki miðað við gaurinn við hliðina á mér sem var byrjaður að hrjóta! En ég náði held ég 20 mín., það er nokkuð gott á minn mælikvarða:oD Þegar ég svo labbaði út, búin í sturtu og setja body lotion og svona þetta helsta, útí þetta yndislega veður þá held ég að ég hafi verið sennilega hamingjusamasta manneskjan í heiminum, get allavegna ekki ímyndað mér að hægt sé að líða mikið betur í lífinu! Reyndar er mér sagt að það blikni allt í samanburðinum við að eignast barn, en á meðan ég hef ekki prófað það þá er þetta besta tilfinningin í mínum heimi! ;o)

Jæja, hafragrautinn minn sennilega ready, ætla að sporðrenna honum og fullkomna þannig daginn:oD

Vona að þið séuð búin að hafa það jafn gott og ég þessa helgina, þar til næst, bæbbli...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já dagurinn minn var svipaður!! æfa, knúsast með Hrannari og reyndar þurfti ég líka að læra svoldið mikið... sweeeeaat!!

Nafnlaus sagði...

Ég skal koma með þér á alla kvennaleiki með Val ef ég fæ að knúsa of "tala" við stelpurnar....

Nafnlaus sagði...

ooooohh, ekki of heldur og!!!

Nafnlaus sagði...

Enda ertu hetja !!!! Þessi knús tilfinning er samt ótrúlega góð, það besta er að hún hverfur ekki.