mánudagur, mars 06, 2006

Litla ljót ennþá ljót, og pínu asnaleg:-/

VÓ funduði jarðskjálftann??? Magnað, hehe ég ligg sko uppí rúmi og fann hann gegt vel:oD Jei gaman að lenda í svona, svipað og tívolítæki!

En ástæðan fyrir því að ég ligg uppí rúmi verður ekki gefin upp:-/ Hef sko rosa trú á að ég geti jinxað (lagt bölvun á, fyrir þá sem eru ekki með orðaforðann minn á hreinu;o)) hluti ef ég tala um þá, og ég var að tala um það að ég yrði eiginlega aldrei veik, og núna er ég uppí rúmi af því að ég er EKKI VEIK! Er samt reyndar ekki alveg veik, bara gegt kalt, en mér er svo sem alltaf kalt, en núna er mér extra kalt:-S Var að vona að þetta væri bara 2.dagur í ljótu, en ég er samt eitthvað asnaleg, eða meira asnaleg en vanalega:-/Fyndið samt þetta jinx dæmi, ég t.d stoppa alltaf fólk af ef það byrjar að tala um að það sé komið vor, því þá er nokkuð víst að það komi frost daginn eftir! Og ef ég verð skotin í gaur (öll skiptin sem það gerist!!) þá má sko ENGINN vita það, því þá gæti ég jinxað það! En svo gerist hvort sem er aldrei neitt af því að enginn fær að vita neitt, þannig að kannski er það líka jinx útaf fyrir sig..! Eða kannski liggur jinxið í því að vera svona upptekin af jinxinu að ég veit ekkert hvað er orsök og hvað er afleiðing og þ.a.l erfitt að reyna að betrumbæta sig! Vó ofhux!!

Jæja, ætla að reyna að leggja mig oggupons svo ég geti farið að þjálfa handboltann óveik, bæbbli...

Hey gleymdi að segja frá leiknum í gær! Við héldum með Haukum, en þeir töpuðu á sorglegan hátt:-/ Á hinn bóginn, þá var Snæfell heilt á litið með sætara lið, eða meirsegja soldið mikið sætara lið, þannig að ÍR, KR og Snæfell hafa forystuna í sætu-liða-keppninni en Haukarnir dottnir út. Þarf að finna mér næsta leik til að horfa á, þarf að ná að skoða öll liðin áður en deildin klárast;oþ

farin aftur...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Blessuð og takk fyrir síðast, vonandi var suðurferðin skemmtileg :)
Var að renna aðeins í gegnum bloggið hjá þér og þá rann það upp fyrir mér að ég er að hlusta á þig í hausnum á mér. Þ.e. þetta virkar svona svipað eins og hljóðsnælda nema að röddin er inni í hausnum á mér. Nuts !!! I know. Samt er líka kostur að þegar "heyri" röddina í þér byrja ég að lesa hraðar, þ.e. til þess að halda í við þig.
Vonandi sjáumst við sem fyrst þannig að ég nái andlitinu með röddinni ;)

Nafnlaus sagði...

heyrðu vó... hver er sveitamaður?

Hafrún

Nafnlaus sagði...

Nákvæmlega !!! :)

bjarneybje sagði...

Hahaha, eru sumir forvitnir?! "Sveitamaður", við höldum þessu bara á milli okkar..! ;oþ