Þetta var sko ansi óvelkomin bloggpása! Tölvan mín ákvað að veikjast aftur, ljóskan ég hélt ég hefði verið búin að setja í hana vírusvörn BUT NO, hún virkaði allavegna ekki neitt:-/ Þannig að við (ég og tölvan mín) fengum smá bakteríuheimsókn:o( Hey þið megið giska á hvort ég var búin að taka afrit af öllum gögnunum mínum eins og ég ætlaði að gera eftir að hún dó síðast! öh nei..!
Dísús, ég þarf að fara á svona "anger management" námskeið:-/ ég og Anna Rut vorum í skvasskennslu í dag, og ég byrjaði vel, svo missti ég touchið og varð svo pirruð að ég fór út úr tímanum þegar 10 mín. voru eftir (af 45 mín) ákvað samt að fara út, anda djúpt og telja upp að 1000 í staðinn fyrir að vera inní búrinu með skapið mitt, hefði ekki verið sanngjarnt gagnvart þeim! Fo&% hvað ég get verið leiðinleg þegar ég er í vondu skapi! Má kannski til "gamans" geta þess að ég þurfti að kaupa mér nýjann skvassspaða í gær eftir að hinn brotnaði í furðulegu slysi, hélt þessir spaðar ættu nú alveg að þola það að vera slegið í veggi eða kastað í gólf af og til, but obviuosly not! Og núna gott fólk, vitiði af hverju ég á ekki kærasta...
Reyndar á ég kannski tilvonandi eiginmann, fer allt eftir því hvort hann fær ásættanlegt tilboð frá Spáni, öppdeita ykkur um stöðu mála síðar! (finnst ykkur þetta hljóma eins og ég sé að nota hann?? ;oþ)
Hef samt áhyggjur af að brúðkaupssöngvarinn minn sé að fara til spillis! :-/ Verð eiginlega að fara að drífa í þessu, hann er nebbla bara að mjókka og mjókka, þarf að ljúka þessu af áður en hann hverfur alveg! Humm, man samt einhver hvenær ég var búin að setja markmiðið á að halda giftinguna? Man ég var að tala um raunhæft markmið, sem væri þá sennilega í kringum 2020, en vegna krónískrar óþolinmæði þá held ég að ég hafi flýtt henni e-ð (Orri, ertu ennþá til taks ef ekkert annað býðst? (þá sérstaklega ef tilboðið frá Spáni klikkar!)) Jæja, þetta kemur allt í ljós, ætla að tala við Begga og athuga hvort hann hafi verið búinn að skrifa einhverja dagsetningu á mig, þá verð ég víst bara að halda mig við hana, get ekki haldið brúðkaupssöngvaranum mínum í biðstöðu endalaust!
Öh hef annars ekkert meira í fréttum, helgin verður skemmtileg, vil byrja á að hvetja alla til að mæta á evrópuleikina hjá Valsstúlkunum, sá fyrri á morgun í Laugardalshöllinni kl.19:15, og sá seinni á lau kl.14:00. Ég kemst reyndar ekki á seinni leikinn því ég er með litlu gerpin mín að keppa alla helgina, sem er reyndar alltaf líf og fjör;o) Þarf að ná að púsla sunnudeginum, er nebbla með bæði a- og b-lið og óvirkann aðstoðarþjálfara þannig að ég þarf helst að klóna mig:-/ Þær eru reyndar búnar að vera að suða um að fá Gillzenegger til að brúa bilið, efast ekki um að hann sé æstur í að koma kl.11:30 á sunnudagsmorgni til að stjórna handboltaleik hjá 5.flokki kvenna..! ;oþ Jæja, hlutirnir hafa víst tilhneigingu til að reddast, fer pottþétt allt á besta veg:o)
Verð að hætta, lendi nebbla í óvæntri langri pásu og var komin á heavy skrið í tiltekt í herberginu mínu, þarf núna að klára bókhaldið og ganga frá smádraslinu og þá er allt orðið spikk og span, vá hvað það er gott fyrir sálartetrið að hreinsa upp allt sem maður er búinn að vera að ýta á undan sér, mér líður eins og ég sé ca. 10 kg léttari!
Well, hætt þessu röfli, farin að klára tiltektina...
7 ummæli:
Ef ég verð frísk skal ég vera aðstoðarþjálfarinn þinn.. Ég meina.. maður getur nú ekki gleymt það miklu á 12 árum ;)
hehe, takk sæta mín, getur vel verið að ég þurfi að þiggja það:-/ vona að þér batni sem fyrst! ;o*
hey ég get kannski klónað þig.. búin að vera að læra erfðafræði you know og flutti m.a. verkefni um klónun.. HAHAHA
hmmm... en hvað með hófann?
Eva
heyrdu, bara byrjar ad tala vid mann og svo bara offline.. damn.. :)
heyrðu á móti, mar er busy woman you know! Þurfti að rjúka, þýðir heldur ekkert að bíða með að svara manni í 7 mín. or something og búast við að mar bíði bara eins og ekkert sé sjálfsagðara..! ;oþ
hva er tölvan í fríi? Ég tek að mér fjarviðgerðir.
Skrifa ummæli