Ég er kannski bara þessi leiðinlega týpa, nöldrandi yfir smámunum o.s.frv:-/ Ég sá t.d myndbandið með Silvíu Nótt, og það er bara allt í lagi og textinn ágætur EN mér finnst persónulega too much þegar hún fer að "tala við" Guð í símtalinu, (þeir sem hafa ekki séð þetta þá segir hún:"Hello is it God? Yo wazz up doc?") Mér finnst það alveg fyndið, og sennilega flestum Íslendingum undir 30 ára, en við erum heldur ekki sérlega guðrækin þjóð! Mér fannst þetta með myndbirtingarnar af Múhameð soldið víti til varnaðar, ekkert að vera að hafa þessa guði of mikið í flimtingum! Oh well, kannski óþarfa tuð, en ég held að þetta geti kostað okkur einhver atkvæði hjá fólki sem er virkilega trúað og gæti litið á þetta sem brot á boðorði nr.2: "Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns við hérgóma" Og fyrir hvað annað en hégóma stendur Silvía Nótt??
Að öðru en tuði;o) Er með harðsperrur all over the place!! hehe ok, kannski pínu meira tuð;oþ Fór í nudd til Jóa áðan, og ég held að ég sé ekki með blóðflæði í líkamanum:-/ Sem gæti útksýrt af hverju mér er ALLTAF kalt og jafnvel af hverju ég er með krónískar harðsperrur:o( (og er ástæða þess að ég er að leggjast undir hnífinn á mánudag, er að fara í æðahnútaaðgerð, mjög töff, 27 ára í ellimannaaðgerð! :-/) Og djöfull er það vont þegar hann er að koma FLÆÐINU af stað! Á tímabili var mér orðið alveg sama um þetta helv... FLÆÐI! Var emjandi á bekknum á honum, hann vildi reyndar meina að ég væri meiri masókisti en hann sadisti þar sem ég hló á meðan hann píndi mig, en það var samt svona sársaukahlátur! Og svo kleip ég hann líka einu sinni (FAST!) og ég hef reyndar líka sparkað í hann, samt ekki rosa fast. Ótrúlegt að ég skuli yfirhöfuð fá að leggjast á bekkinn hjá honum! Kannski er hann bara nettur masó líka;oþ En það er allavegna deginum ljósara að hann er soddan sadisti! Þetta er samt alltaf totally þess virði eftir á, ótrúlegir hlutir sem hann er stundum að fixa..!
Nenniggi meir, þarf að stússast aðeins áður en ég hitti Önnu pönnu í glerbúrinu, later...
1 ummæli:
27 er geðveikt mikið svo það er ekkert óeðlilegt að fara í ellimannaaðgerð... ;) *smooch*
Skrifa ummæli