Var mætt niðrí Gym80 kl.5:45, ákvað að fara með kl.6 kúnnann í smá "vettvangsferð" ;o)
Hann er nebbla svo rugl sterkur, tók t.d 115 kg í bekknum um daginn, kl.6:30 á fastandi maga! Og ég hef verið að grínast með það að ég þurfi að fara með hann niðrí Gym því tækin í Sporthúsinu er bara að verða of létt fyrir hann (!) og svo ákvað ég bara að láta verða af því:oD Tókum þrusuæfingu þar niðurfrá, ég skil ekki hvað það er, en þyngdirnar aukast alltaf til muna bara við að stíga fæti þarna inn!!
Dísús samt, þessi kúnni minn er búinn að vera hjá mér í þónokkurn tíma og það er rosalegur munur á honum (þó vigtin haggist varla, vöðvar að replace-a fitu, mjög jákvætt;o)) og fólk í kringum hann er mikið farið að tala um árangurinn, EN point sögunnar er samt annað sko. Ég var e-ð að tala um það við hann í morgun að það væri erfiðara fyrir stelpuþjálfara að fá kúnna t.d niðrí Gym80 og á þessum massastöðum. Þá sagði hann mér að fólk væri einmitt oft mjög hissa, þegar hann segði í kjölfarið á árangursspurningunum, að hann væri hjá kvenkynsþjálfara! En svo sagði hann við mig að ég væri eiginlega besti (hans orð! :-/) þjálfarinn sem hann hefur haft (og nottla skemmtilegasti, alltaf með brandara á reiðum höndum og sonna;oþ eða reyndar var það ég sem kom upp með það, en ég vil endilega láta það fylgja sögunni!) og hann hefur aldrei náð jafn góðum árangri áður :oD (hann hefur verið hjá 2 öðrum (karlkyns) þjálfurum) Þannig að ég blæs nú bara á svona fordómarugl! Auðvitað er erfiðara fyrir stelpur að spotta miklar þyngdir, en flestir þeir karlmenn sem ég hef þjálfað, og hafið í huga að 90% af fólki er meðaljónar, auðvitað er ég ekkert að þjálfa einhverja kraftlyftingagaura, en þessi venjulegu gaurar eru ekki einu sinni að ná mér í þyngdum þannig að macho-talið er kannski ekki alveg tímabært, allavegna ekki fyrr en þeir eru búnir að ná mér í bekknum..! *piff*
Hey fyndið líka, það var stelpa í afgreiðslunni í Gym80 sem ég hef aldrei hitt áður, en hún kynnti sig og ég sagði nafnið mitt, og þá kom:"ágætt að fá sjá þig, hef nebbla verið að lesa bloggið þitt en vantaði alltaf andlitið, gott að vera loksins búin að hitta þig" hehe, já magnaður andskoti.
Hef einmitt stundum spáð í það hversu margir sem þekkja mig ekkert lesa þetta rugl, finnst það stundum soldið krípí, að einhver sem ég veit ekki hver er, viti geðveikt mikið um mig en ég ekki um hann/hana. En svo á ég það til að lesa blogg hjá fólki sem ég þekki ekki þannig að ég er alveg jafn mikið kríp! ;oþ
Jæja, verð að fara að lúlla, er alveg búin á því eftir mjöööög annasama viku, og er svo að vinna 9-23 á morgun, þannig að ég ætla að fara að lúlla.
Krípið kveður...
2 ummæli:
Hæ muhahaha veit allt um þig ...thíhí ..það er bara gaman að kikja á þetta hjá þér. og mjög gaman að fá að sjá þig í gyminu ... núna allavega kynnti ég mig og kommentaði .. ekki jafn krípí .. er líka með blogg.. getur kikkað á það ef þú villt lesa bullið mitt.... það er linkur hjá Svövu massa sjáumst vonandi aftur í gyminu ..gaman að sjá fleirri stelpur þar.. kv Hidda(kv frá krípí stelpunni í afgreiðslunni í gym 80)
hahaha, mér fannst þú nú ekkert rosa krípí þegar ég hitti þig!! hehe, en takk fyrir kvittið, og við sjáumst pottþétt aftur;o)
Skrifa ummæli