mánudagur, mars 13, 2006

Don´t worry, I´m back! ;oþ


Úps, er víst ekki að standa mig í blogginu þessa dagana, og núna get ég ekki skellt skuldinni á tölvuna:-/
Humm, hvar skal byrja? Öh helgin fór að mestu leyti í túrneringu hjá litlu gerpunum mínum, þær stóðu sig þvílíkt vel og ég gæti ekki verið ánægðari með þær. Oft er líka talað um að forledrar séu eitt það leiðinlegasta við barna-og unglingaþjálfun, en ég fann það um helgina að ég gæti ekki verið heppnari með foreldra! Kannski ekki skrýtið að "litlu hermennirnir" mínir séu svona miklir snillingar fyrst þær voru getnar af svona frábæru fólki. Ætla svo sem ekki að útlista nákvæmlega hvað það var sem mér þótti svona endalaust vænt um, en ég gæti ekki komið hamingjusamari út úr helginni:oD Var reyndar með bæði a-og b-lið þannig að þetta var ansi mikil keyrsla og ég var ekki beint endurnærð eftir helgina, en þetta var bara þægileg þreyta. Fór nú samt og hljóp í klukkutíma á laugard.kvöldið, telst sennilega mjög eðlilegt kl.20:30 á laugardegi, en að var svo spennandi síðasti leikurinn okkar (endaði samt mjög vel af okkar hálfu:oD) að ég þurfti eiginlega bara að fara að hlaupa og losa smá orku..! Og svo var mæting kl.8:15 á sunnudeginu þannig að ég slaufaði öllu félagslífi, hafði einfaldlega bara ekki neina umframorku:-/

Dísús, held ég sé með ritstíflu, lendi ekki oft í að hafa ekkert að segja! Hey jú, hef nokkrar sögur í handraðanum;o) ætlaði að segja það mar, sjúkk!
T.d sagan um hana Evu mína, (Halldórs) Þarf samt að byrja á að útskýra smá, þannig er mál með vexti að við erum báðar mjög fótsmáar, hún er 172 sm og ég 170 sm á hæð og notum báðar skó nr.37. Enda köllum við þetta heldur ekki fætur í daglegu tali heldur hófa! Þar sem við erum einnig báðar svokallaðir þungavigtarmenn þá þýðir það að það safnast mikil þyngd á lítinn flöt, (og nú fer point sögunnar að koma!) við vorum á æf. um daginn og Eva var eitthvað að reyna að svíkjast undan (ok reyndar ekki, en að sjálfsögðu fegra ég minn hlut sögunnar;oþ) En við vorum allavegna í einhverju rugli, og hún byrjar að beita mig ofbeldi (gerir það iðulega þegar hún veit að hún hefur tapað rökræðunum!) hún kýlir í áttina að mér, sem hefði ekki verið neitt mál, kella þekkt fyrir leiftursnögg viðbrögð! Já nei, haldiði að hún hlammi ekki hófanum sínum oná hófann minn, svo að ég er pikkföst og danglar svo í mig! Ha, hafiði heyrt um lúalegri aðferð?? Og ekki nóg með það, heldur er nottla helv.. hófinn frekar lítill flötur með miklum þunga þannig að það var bara mikil mildi að ristin mín hélt! Sennilega af því að hófinn minn er líka frekar lítill þannig að allur (!) massinn safnast saman á lítinn flöt og þolir því betur svona óvæntar átroðslur. Varð samt gegt illt sko, hef ábyggilega tognað eða e-ð, ætla að kýla hana í öxlina næst þegar ég sé hana (ef hún verður ekki komin með frunsuna á bakið sem ég er að senda til hennar sem bölvun! Hún er samt bara heppin að ég sendi hana ekki til helvítis..!)

Öh man samt ekki alveg fleiri sögur í augnablikinu, þær skjóta samt sennilega upp kollinum vona bráðar.

Ætla að fara að lúlla, Eva þú veist ég elska þig, og af því tilefni ákvað ég að skella inn mynd af þér (hefur reyndar verið birt áður, en þetta er svo fögur mynd að mar fær einfaldlega bara ekki nóg af henni! ;oþ) og ég vona að fólk taki tillit til þess að ég breytti sögunni töluvert Evu í óhag, hún er alveg yndislega sko, þrátt fyrir að vera hálffötluð bara með hálfa fætur eða svo..!

Farin...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahahaha
þú hefur sennilega aldrei verið jafnnálægt því að segja sannleikann og í þessari sögu ... ussss
það var bara alveg nákvæmlega svona sem þetta var - maður hefur nú þurft að verja sig í gegnum tíðan og núna veistu hvernig er best að frkv. þetta - hlamma hófanum með öllum sínum 200 kílóum á rist andstæðingsins og sveifla svo hnefunum ... getur ekki klikkað!!!

Eva Tyson massatröll

bjarneybje sagði...

já þetta virkaði ágætlega hjá þér, ég er sennilega ökklabrotin or something eftir þennan lúalega "bardaga", sem var bara bardagi af þinni hálfu!!Ég var bara saklaust fórnarlamb, sem varð það á að segja einn laufléttann brandara! Þú þarft aðeins að passa gönurnar góða mín..! ;oþ

Nafnlaus sagði...

OU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |\"\"\";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
\"(@ ) (@ )\"\"\"\"*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL!

bjarneybje sagði...

OÓ, verð víst að áframsenda þetta, má víst ekki við ástandið versni!! :-/

hehe en takk Nanna mín, fallegt af þér;o)

Nafnlaus sagði...

Snudra og tudra byrjadar ad slást... tid erud nú meiri vitleysingarnir;) Ef tig langar til ad gera eitthvad nýtt í lífinu tá er spurning um ad tú komir hingad til Svíden og opnir GK hérna...dísús hvad ég vaeri til í tad mar!