Humm, mér fannst hitt bloggið eitthvað þunglyndislegt og var að spá í að eyða því út, en svo hef ég skipt um skoðun og finnst það ekki þunglyndislegt (kemur sennilega mjög á óvart að ég hafi skipt um skoðun!) mér finnst það bara góð áminning um að hætta að draga úr sjálfum, hafa skýr markmið og stefna svo markvisst að því að ná þeim. Það versta sem gerist er að manni mistekst, en þá er maður allavegna komin með eina aðferð í reynslubankann sem mar veit að virkar EKKI;oþ og þá er bara um að gera að prófa aðra aðferð! Oft er það líka þannig að þó einar dyr lokist þá opnast margar aðrar, en maður sér þær oft ekki ef maður festist í að svekkja sig á þeim lokuðust. Og oft eru hinar leiðirnar betri en þessi sem maður hélt að væri best fyrir sig...
Jæja, þá er ég búin að koma fróðleiksmola dagsins frá mér;o) Og er í líka svona ljómandi góðu skapi:oD Búin með eina æfingu, æfði með kl.6-kúnnanum mínum, lyftum bak og svo tók ég 20 mín. brennslu, ætla svo að lyfta fætur með Magna kl.9:30, og svo skvass með Agli kl.15 (jújú, ég vinn alveg pínu líka!) er nú þegar með harðsperrur í rassinum eftir skvass 3 daga í röð, þannig að helgin verður sennilega svokölluð harðsperru-helgi! Kannski maður reyni að fá sjálfboðaliða til að nudd'edda úr;oþ En ég má alveg keyra mig soldið út núna, fer í aðgerðina á mánudag og þá þarf ég að vera frá í 2 vikur!! Vona samt að ég megi fara í léttann göngutúr eftir max 3 daga! Hey spurning um að setja upp veðmál um hversu lengi ég endist? Á samt að liggja sem mest með fæturnar upp í loft, úff og páskarnir að nálgast og ég ELSKA páskaegg:-/ Ætli ég mæti ekki rúllandi í vinnuna eftir páska..! hehe nei nei, verð bara með frosnu vínberin mín yfir tellíinu, vona að það fullnægi nammigrísþörfinni..!
Gotta go, later...
2 ummæli:
Mmmmmmm.... Ég er að borða páskaegg akkúrat núna og það er gooooooooooooooooooott!!!
Njóttu berjanna þinna...;) hehe!!
hæhæ.... kíktu á Víking B síðuna.... upplýsingar um partý á laugardag sem þú verður að mæta í :-) Stína
Skrifa ummæli