Hvað er verra en hár í matnum manns? Ég skal segja ykkur það, KYNHÁR í matnum manns!! OJ OJ OOOOOOJ!!! Ég er allavegna nokkuð viss um að þetta var pung/píkuhár, og sennilega af manneskju af erlendum uppruna, það var kolsvart, gróft og krullað! Ekki það að ég hafi rannsakað það neitt sérlega vel, en þetta var svona það sem blasti við manni, BJAKK:-/ Ætlaði að reyna að borða rosa vel í kvöld þar sem ég verð fastandi frá miðnætti, mæti í vinnuna kl.6:00 en aðgerðin er ekki fyrr en kl.10, og jafnvel seinna. Ég get harkað ýmislegt af mér, en svengd er EKKI eitt af því!!! Jæja, það verður fróðlegt jafnaðargeðið mitt í fyrramálið...
Ég er algjör félagsskítur! Fór svo bara ekki neitt í gær:-/ Var reyndar búin að gleyma að ég var að vinna til miðnættis og ég hafði eiginlega bara ekki orku í neitt eftir það. Tók líka handboltaskvísurnar mínar niðrí Sporthús í morgun kl.11 og nennti ekki að vera illa upplögð, þetta er víst alltaf spurning um að velja og hafna. Finnst djammið líka það lítill "steinn" að það er ekki þess virði að það bitni á stærstu "steinunum" í krukkunum minni;o)
Annars er ég búin að vera heavy morkin í dag, ekki búin að nenna neinu en píndi mig á æfingu. Ég ELSKA svona æfingar þar sem maður nennir ALLS EKKI en fer samt, og endar svo á að vera gegt duglegur:oD Var á færibandinu í klukkutíma, fór reyndar ekki nema 9 km, en var líka aðeins að labba í halla og þannig, og teygði svo geðveikt vel. Fór reyndar úr skónum þegar ég var að teygja og þá var sokkurinn minn blóðugur, litla táin e-ð lasin eftir hlaupið:-/ Veit reyndar ekkert hvað gerðist, fann ekki einu sinni fyrir því að e-ð hefði gerst en litla krúsídúllan greinilega e-ð aum (jájá, ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég er að tala um TÁNNA á mér!)
Hef ekkert meira að segja, ætla að reyna að koma matarlystin aftur í gang eftir þetta stönt með helv... kynfærahárið!! Oj fæ velgju, en ég er allavegna farin, spæjó...
7 ummæli:
tær eru EKKI krúsídúllur hehe
ojjj ógirnilegt!
Gangi þér ve í aðgerðinni!
Kv. Elna
Gangi þér vel dúllan mín í dag ;) heyrumst svo eftir páska.
takk fyrir að skrifa um þetta hár. Missti algjörlega lyst á morgunmatnum mínum...
Sammála - tær eru ógeð
Hafrún
Mínar tær eru ekki ógeð, þær eru krúttlegar!! ;oþ
En takk fyrir kveðjurnar, gekk allt að óskum:oD held ég...
Mæli með Brasílu-hreinsun = Vandamál horfið.
þó maður fari sjálfur í brasilískt þá kemur ekki í veg fyrir að kynfærahár úr ÖÐRUM berist í matinn! oj oj oj
Skrifa ummæli