humm, finnst eins og ég hafi notað þessa headline áður, en það er alltílæ, kannski ekki nógu gott að ég sé farin að endurtaka mig, en ég held það hljótist ekki mjög mikill skaði af þessu..!
Vil byrja á að þakka Fíu píu og Boga hennar fyrir hjálpina með tenglana (Kiddi, þau er líka fólkið sem þú getur þakkað fyrir hjálpina í gegnum tíðina! Þó ég hafi nú alltaf eignað mér kreditið!! ;oþ)
En ég þoooooli ekki að vera andvaka, er samt ekki einu sinni búin að reyna að sofna, Sveinn Ingi kom inn áðan:" ertu upptekin?" Ég:"nei ég er bara að hugsa" dísús, þetta er svona eins og einhver athöfn, svipað og "ég er að pissa" eða eitthvað! Þetta ofhux getur ekki verið hollt fyrir mann! Var að spá í að blogga um hluti sem skipta mig máli, hluti sem hafa snert mig á einhvern hátt upp á síðkastið en það væri bara ca. heil masters ritgerð! Ég gæti sennilega gefið út bók í hverri viku ef ég myndi skrifa ALLT sem ég pæli, eða það myndi sennilega slaga upp í veglegann doðrant!
Einn vinur minn sagði einu sinni að ef hann talar við mig, í síma t.d, þá þarf hann helst að fara og leggja sig eftir það! Hehe, þá nær hann sem sagt ekki að innbyrða allt brainstormið og verður bara hálf ringlaður! Veit nú ekki alveg hvort ég eigi að taka því sem jákvæðu eða neikvæðu? Eða þá að kannski er hann bara einfaldlega ekkert alltof vel gefinn? Já maður spyr sig!! ;oþ Ég er reyndar með hausverk núna, fæ ekki oft hausverk, það er pottþétt af því að heilinn er að vinna svo mikið! En samt næ ég ekki að sofna, vildi óska að ég væri með svona off takka á enninu, eða nei ekki á enninu það væri nú ekki mjög fallegt, kannski bara bakvið eyrað þar sem hann væri minna áberandi!
Jói (þjálfari í sph) stakk einhvern tímann uppá að setja mute takka á mig, vildi meina að ég talaði mikið!! :-/ og sagði líka að ég væri ástæðan fyrir því að hann ætti ekki kærustu, fannst ég tuða heldur mikið, vorum að æfa saman á því tímabili, og ég átti það til að vera að bitchast eitthvað í honum og hann nennti því ekki að fá líka tuð heima hjá sér! hehe, en hann tók mig þó framyfir kærustu, það hlýtur að vera hrós:oD vorum samt bara að æfa saman til að forðast allann misskilning! Vorum/erum reyndar líka mjög góðir vinir, en það hefur alltaf verið mjöööög platónskt allt saman, reyndar bara eins og með alla strákavini mína. Væri ekki hægt að umgangast þá svona mikið annars! En já, Jói er nú samt giftur í dag, henni Tracie sinni, þannig að varla var ég nú svo slæm;oþ
Æ vá nenni þessu ekki, ætla aftur í Bubbles, kem kannski með eitthvað gáfulegt á morgun...
2 ummæli:
ég lág líka í gær og gat ekki sofnað og þá hugsar maður SVO mikið.. :O(
Já, margar anvökunæturnar hef ég pælt í on-off takkanum... herregud hvað það væri næs! pirrandi tímaeyðsla að geta ekki sofnað! Og ofurhuxið tekur orku.. verst að maður hefur ekkert control með það... hummm.. annars bara knús frá Svíden, hlakka til að fá þig í heimsókn:)
Skrifa ummæli