Úrslitin við "Svebba" verða ekki gefin upp! Og þetta verður sennilega í fyrsta skipti sem ég fer ekki fram á rematch! Hann sagði að þó hann hefði skorað fleiri stig þá hefði ég samt unnið í spaðakasti! Hann var samt bara heppinn að hafa ekki fengið hann í sig, ég var sem sagt ekki í jafnaðargeðinu mínu:-/ Og hann var ansi lunkinn við að pirra mig (þó ég muni ekki nákvæmlega hvernig núna!!) og þegar ég spurði til hvers han væri að röbba því inn að ég væri að spila illa, .á kom svarið: "Af því að þú tekur því svo illa, ég er bara að reyna að brjóta þig niður" Þið getið ímyndað ykkur ræðuna sem kom hjá mér um af hverju í ósköpunum hann væri að REYNA AÐ BRJÓTA MIG NIÐUR!! Ekki eins og það hafi verið einhver titill í húfi! En svo jöfnuðum við okkur (eftir nokrra klukkutíma) og erum byrjuð að tala aftur saman! Og svo reyndar fórum við að þræta um það hvort okkar væri asninn! Þannig að ég get alveg eins gefið út yfirlýsingu opinberlega að ég er meiri asni að láta svona eins og já, asni!! Fyrirgefðu Svebbi minn, lofa að haga mér betur í nánustu framtíð:-/
Jæja þá er það komið til skila og ég þarf að fara að þjálfa, búin að vera í stresskasti í dag að reyna að púsla deginum saman! Verður gott ð leggjast í beddann sinn í kvöld!
Hey, búin að skrá mig á Boot camp námskeið sem byrjar 9.maí og svo var verið að biðja mig, Elmar og Egil um að halda smá námskeið fyrir fólki í formi, sem vill komast í enn betra form, humm já eða bara fólk í engu formi sem vill komast í form, eða kannski bara einfaldast að auglýsa þetta fyrir fólk með sjálfspíningarhvöt!! Hehe, en þetta verður í gangi núna í sumar, byrjar reyndar í maí. Þannig að það er allt að gerast, þetta verður fu%&ing brilliant!! :oD Þetta sumar leggst endalaust vel í mig, kannski hefur veðrið núna eitthvað með það að segja að ég sé í góðum gír, en þetta er ansi kærkomið veðurfar! Vó gotta go
Later....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli