Páskamyndin virðist loksins ætla að hanga inni, svona fyrir ykkur sem voruð að velta fyrir ykkur hver þessi annálað fegurð mín væri! ;oþ (ca.3 færslur síðan)
Furðufataæfingin var fyndin, algjörir snillingar þessar stelpur! Fyndið samt að ein mætti í FRAM-buxum, og ein í ÍR-bol (gott ef Fritzson átti hana ekki, meirsegja með eiginhandaráritun frá kallinum og alles!) en það sem mér finnst skondnast er að það séu að þeirra mati FURÐUFÖT! hehe, og nottla mínu líka! Humm, ég hef samt spilað með báðum þessum liðum! Félagsmella hvað?? En já aftur að furðufötunum, ég gaf uppáhaldssparigrísinn minn í verðlaun, með peningum í! Hehe, fín leið til að losna við allar eina-krónurnar sínar!! ;oþ Það var samt mjööööög erfitt að gera uppá milli sko, voru hver annari asnalegri (sem er hrós sko!) en sú sem hreppti verðlaunin lagði það á sig að mæta í kjól! hehe, ein var með svuntu, önnur með þverslaufu og einhverjar í asnalegum gammósíum og skrípó stuttbuxum, þetta var sem sagt mjög skondið! Þó að æfingin sjálf hafi verið frekar döll, spila á teig, sennilega eitt það leiðinlegasta í geimi en nottla bráðnauðsynlegt, svo lét ég þær fá smá keyrslu í lokin, alltaf gott að klára æfingarnar með smá sprettum;o) Ótrúlegt samt hvað maður getur sprettað meira og hraðar bara við það að fá einhverja tuðru til að elta! Magnað fyrirbæri..!
Nenniggi meir, þarf að fara að leggjast til hvílu hvað af hverju, mæti Eddu (Garðars) í glerbúrinu kl.6:30 í fyrramálið, þarf að vera vel upplögð! Er það yfirleitt ekki þegar ég spila skvass svona snemma á morgnana, en nú þarf að vera undantekning þar á, hata að tapa fyrir stelpum! ;oþ Og ég vona að við náum báðar að halda kúlinu, erum sennilega tvær skapstærstu manneskjurnar sem ég þekki:-/ Ef eitthvað fer úrskeiðis, þá var gaman að kynnast ykkur og blessuð sé minning mín, eða Eddu...
Later (I hope!)
4 ummæli:
hvernig fór leikurinn í glerbúrinu í morgun ??
kv. Gréta Rún
langar alltaf að smakka rís páskaegg þegar ég sé hvað þessi færsla heitir.. hehe
Úff Gréta, þú færð ekki að vita það!! En ég er sko hætt að spila skvass fyrir hádegi!! Fokking fokk, ég er brjáluð!!!
Svava, mjöööög eðlilegt!
Sæl skvísa.. flottar myndir úr páskafríinu ;) hehehe.. langaði að óska þér gleiðilegs sumars sem gengur í garð á morgun.. vei vei
Skrifa ummæli