mánudagur, apríl 17, 2006

búmsjaka


Humm, verður skrýtið að fara að vinna á morgun, búin að vera að iðjuleysast síðust 2 vikurnar en nú verður allt sett á fullt. Bæði vinnu- og æfingalega séð, stefni á að byrja í skvassinu í þessari viku og svo ætlum ég og Heiður að negla niður stundaskránna fyrir sumarið, þ.e í hvaða göngur við ætlum og hvenær, hlakka ekkert smá til! Var t.d að skoða myndirnar frá verslunarmannahelginni og ég fékk alveg fiðring í magann, ólýsanleg tilfinning að vera 2000 m yfir sjávarmáli, með fallegt útsýni (ef veðrið er gott) og endalaust af súrefni, gerist ekki betra:oD Svo hlakka ég ótrúlega mikið til að fara með stelpurnar mínar til Svíþjóðar á Partille cup og að sjálfsögðu að kíkja á Dóru í Malmö, sem btw er búin að skora fyrst markið sitt fyrir Malmö FF, að vísu soldið síðan en hún er allavegna búin að opna markareikninginn;o)
Ég sé allavegna fram á frábært sumar:oD

En talandi um handboltastelpurnar mínar, við skelltum okkur á skauta í dag, það var stuð. Þið megið geta þrisvar hver átti besta hringtímann! hehe, alltaf að velja sér hagstæð viðmið!! ;oþ Svo er furðufataæfing á morgun og verðlaun fyrir besta búninginn, nú þarf ég bara að leggja kálið í bleyti og finna einhver furðuleg verðlaun! En já, það sem sagt alltaf líf og fjör í boltanum;o)

Hef ekki meira að babbla í bili, hlakka óendanlega mikið til að vera að endurheimta alla tilbaka! Illa gert af fólki að fara svona frá mér:-/ humm, samt ekki líkt mér að hafa ekki getað notið einhverfunnar í botn eins og oftast, en tímarnir breytast og mennirnir með segir einhvers staðar, held samt að mínar breytingar séu bara til góðs, reyndar er ég sannfærð um það;o)

Nóg af bulli, later...

Hey já, fór á Ice með íslenski tali um helgina, var að vinna á sambýlinu og fór með einum þaðan, held mér finnist íslenska talsetningin betri, Bæði fíllinn og letidýrið koma betur út með íslensku leikurunum, finnst mér allavegna, flestir bara einhvern veginn búnir að ákveða að íslensk talsetning sökki, en hún gerir það bara ekki neitt. Huh! En jesús minn, eruði að grínast! Ég fór með einn sem er með downs-heilkenni á myndina, hann var með veskið sitt í innan á vasanum til að hann myndi pottþétt ekki týna því, en geymdi svo jakkann sinn í sætinu við hliðina á sér. Þegar við vorum að fara þá er veskið horfið! Ég skreið á 4 fótum 2 sætaraðir til að athuga hvort það hefði dottið úr en fann það ekki! Hef ekki heyrt frá bíóinu, þau ætluðu að hringja ef það myndi finnst, en mig grunar að einhver hafi einfaldlega stolið því! Spáið í það, viðkomansi hlýtur allavegna að fá töluvert samviskubit þegar hann opnar veskið og sér skilríkin og sonna! Vona allavegna að viðkomandi hafi samvisku..! Vil samt ekki trúa því að einhver leggist svona lágt! :-/

Jæja, fúlt að enda þetta á svona ekki skemmtilegum nótum, en ég vona samt að það sé önnur skýring á þessu en að því hafi verið stolið, þó ég komi reyndar ekki auga á neitt sem gæti hafa gerst, allavegna ekki nema með einhverjum furðulegum hætti, en margt furðulegt hefur gerst, krossum puttana og vonum það besta!! ;o)

Engin ummæli: