sunnudagur, apríl 16, 2006

gleðikona í háska...


Eða kannski frekar gleðilega páska börnin góð;o) Læt fylgja með eina afar páskalega mynd svona í tilefni dagsins, maður er ekki annálaður fyrir fegurð sína fyrir ekki neitt!! Öh já, einmitt..! ;oþ

Ég var svo ekkert með gubbupest eftir allt saman, var orðin góð þegar ég vaknaði í gærmorgun, sjúkkett! Er reynda rbúin að vera með króníska ógleði í tvær vikur, ekki nógu skemmtilegt, en samt skárra en að fá pestina, þá er maður alveg off! Ef ég vissi ekki betur þá héldi ég að ég væri preggy or something! :-/ Eeeen ég held við getum útilokað þann möguleika..! ;oþ

Template-ið eitthvað ekki að dansa með mér núna, tenglarnir í einhverju rugli, verður vonandi kippt í líðinn von bráðar!

Fjölskyldan ákvað að koma heim degi fyrr en áætlað var, þannig að ég verð ekki ein í kotinu í dag og á morgun, en er samt alltaf til í að göngutúrast ef einhverjum vantar böddí:o) Fór reyndar í klukkutímabrennslu + maga og mjóbak í morgun (eða eiginlega hádeginu!), en væri alveg til í að fara út og anda að mér smá súrefni. Stefni á það seinni partinn, eða eftir kvöldmat, hef alltaf iPodinn minn til taks ef enginn nennir að joina mér.

Annars eru þetta búnir að vera leiðindapáskar, bestu vinirnir stungu af, annaðhvort til útlanda eða út á land:-/ Hlakka til í næstu viku þegar ég er búin að endurheimta alla!
Valsstelpurnar eru t.d út í Rúmeníu að fara að keppa, leikurinn er einmitt sýndur á eftir á einhverri stöð sem næst í gegnum gervihnött, átti víst að vera sýndur hér á einhverjum sportbar en mér hefur ekki enn tekist að finna út hvar:o( Allir að senda þeim happy thoughts, leikurinn byrjar núna kl.15:30 að okkar tíma!
Vó, það var ráðist á einn úr hópnum og reynt að stela veskinu hans, en hann náði því tilbaka. Kalli (Erlings) lætur ekkert vaða svona yfir sig sko! Greyið þjófurinn segi ég nú bara! Hehe;oþ En þau mega víst ekki vera mikið úti við því það er svo mikið af glæpamönnum þarna! Eðlilegt að búa við svona aðstæður! (allir að muna að vera þakklátir fyrir hversu gott við höfum það hérna á klakanum!)

BTW Elsku Eva mín, innilega til hamingju með daginn;o* Loksins búin að ná mér! ;o)

Nenniggi meir í bili, later...

Engin ummæli: