Jæja þá má ég víst uppljóstra því að það er verið að gæsa Evu vinkonu í dag en ég missi af því
:o( Ég ætlaði reyndar að vera með í stígvélafótbolta sem átti að byrja kl.15 en það varð einhver misskilningur með tíma þannig að ég náði því ekki:-/ Ætla samt að reyna að ná einhverju af prógraminu hjá þeim í kvöld, meiriháttar samt að eiga leik kl.8 á morgun, ætla því að reyna að fara að sofa á skikkanlegum tíma!
A-liðið mitt spilaði áðan og vann 15-8, vorum samt ekki að spila alveg nógu vel þó að mjöööög góðir taktar hafi sést inná milli. En jákvætt samt að spila ekki eins vel og þær geta en vinna samt með 7 mörkum (í 2x15 mín. leik)
Hey fyndið, mótið er haldið uppí Digranesi (HK-húsið) Það eru kannski einhverjir sem muna eftir því að ég fór með 4.flokki karla í fótboltanum hjá HK sem fararstjóri sumarið 2004. Fórum til Danmerkur, 2 þjálfar, 3 farastjórar og 40 kvikindi! Þeir eru samt algjörir snillingar, og þetta var ótrúlega skemmtileg ferð. En já, ég hitti þá uppí Digranesi þar sem þeir voru að lyfta (finnst þeir reyndar búnir að stækka heldur mikið á 2 árum! Þeir voru soddan stubbar þegar við fórum út og ég var með þá í vasanum þá en þeir gnæfa yfir mig núna! Er samt pottþétt ennþá með þá í vasanum;oþ) En já, það var eitt sem ég var búin að gleyma, það var einn sem samdi lag um mig og þegar þeir sáu mig áðan þá létu þeir hann syngja lagið, sem er einhvern veginn svona:" Bjarney, ó Bjarney" man svo ekki alveg meir, en þetta var afar hugljúft lag! Það var reyndar með frekar falskri laglínu, en afar fallegt engu að síður (mér finnst það sennilega því lagið er jú um mig!!) Það var svo sem ekkert point með þessari sögu, fannst þetta bara ógó fyndið, og ótrúlega skemmtilegar minningar frá þessari ferð, litlir pjakkar að renna á gelgjuna geta verið fróðlegur félagsskapur..!
Jæja, ætla að drullast aftur upp í Digró, þarf að stappa stálinu í stelpurnar mínar fyrir næsta leik, later....
3 ummæli:
Áfram HK
Ég vissi hvaða komment biði mín áður en ég opnaði linkinn!! ergo = þú ert fyrirsjáanlegur! ;oþ
Áfram Valur
Þú bauðst upp á þetta... hehe!
Svo er ég bara ánægður að ég sé fyrirsjáanlegur á þessu sviði enda HK mitt lið...:)
Skrifa ummæli