Var að koma heim af æfingu, vá hvað það var ljúft! Fannar var sá eini sem tók veðmálinu mínu og hann giskaði á 4 daga, (Fannar, skuldar mér 5000 kall, þetta voru bara 2 dagar;oþ) Anyways, ég lyfti bak og axlir og labbaði á færibandinu í 15 mín. Var reyndar bara á 4.8 km hraða, en mér skilst að það sé gott að labba og koma blóðrásinni af stað (læknirinn sagði það, er ekki að skáld'etta!) og svo ætla ég að fara að vinna aðeins á morgun, bara taka 2-3 kúnna, aðeins að losna úr myglunni hérna heima. Það er samt píííííínu ljúft að geta bara farið að sofa um miðjan daginn ef mann langar, en það er samt bara gott í 1-2 daga! Er líka búin að vera verkjatöflulaus í dag en finn samt ekki mikið til þannig að ég greini mig þannig að óhætt sé að fara að skrönglast aðeins í vinnuna;oþ
Vá, hef annars ekki mikið að segja, enda ekki mikið að gerast í rúmfletinum mínum, ekki frekar en fyrri daginn! hehe
Kem þá bara aftur síðar (þegar ég hef eitthvað að segja..!) bæbbli...
2 ummæli:
Farðu varlega vinan !!!!
Ég sé það núna að þessi ágiskun var náttúrulega bara útí hött, manneskja sem æfir að meðaltali 3,5 klst á dag heldur aldrei út 4 daga :)
Skrifa ummæli