Margir að spyrja mig út í húðflúrin mín, ansi margir sem höfðu ekki hugmynd um þetta, finnst ég jafnvel sko ekki tattútýpan!! En hérna eru myndir af þeim ef einhver vill skoða. Vil samt taka það fram að þetta er ekki eitthvað sem ég er sérstaklega stolt yfir, sýni þau nánast aldrei, sem útskýrir sennilega af hverju margir höfðu ekki hugmynd um þetta. Og ef ég hefði engin tattú í dag þá færi ég sennilega ekki að byrja á því! Tók samt þann pólinn í hæðina að ég mun aldrei sjá eftir því að hafa gert þetta, þetta er endanlegt og ég get ekki breytt því (nema með laser sem er rándýr og ekki einu sinni víst að útkoman verði eitthvað betri! jafnvel verri...)
Mjóbakstattúið mitt er reyndar virkilega illa gert og hef ég mikið spáð í að láta laga það, veit þó ekki hvort ég nenni að ganga í gegnum græðingar-prósessið aftur, en hins vegar þegar ég horfi á myndina þá sé ég hvað það er mikið fúsk og hugsa að ég muni láta á einhvern hátt breyta því. Hvenær sem það nú verður...
En já, þetta með að sjá eftir því, það sem flestir virðast hafa mestar áhyggjur af er hvernig mér muni finnast að hafa þetta þegar ég verð komin á elliheimili! Í fyrsta lagi er ekki sjálfgefið að ég komist á elliheimili, í öðru lagi þá haga ég ekki mínu lífi þannig að ég muni hafa það rosa gott á elliheimilinu, þó ég nottla reyni að byggja upp fyrir framtíðina, passa heilsuna og annað svo að líkami og sál muni endast mér eins lengi og vel og kostur er á! En það má ekki gleyma að njóta þess að vera til Í DAG af því að maður er kominn með hugann langt inn í framtíðina. Í þriðja lagi, þá munu sennilega um 40-50% elliheimilissambýlisfólksins verða með húðflúr af einhverri gerð, og í fjórða lagi þá vona ég að ég muni bara teljast svöl amma! ;oþ
Þá vitiði allt um mínar tattúpælingar, og ég segi við fólk að hugsa málið vel, ágætis myndlíking er sú að uppáhaldsflíkin í skápnum verður ekki alltaf uppáhalds! En ef þið ákveðið að fá ykkur, THAN JUST FUCKING ENJOY IT!! ;oþ
*Glúbb* Chelsea-Liverpool að byrja, gotta go!!
3 ummæli:
tattúin verða að tákna eitthvað;) eins gott að maður hafi þá sömu lífsspeki þegar maður er kominn á elliheimilið;)
Ekki eins og það sé einhver svaka meining í mínum! Fyrir utan að þau eru 3 sem er happatalan mín, fólk fær sér tattú af hinum ýmsustu ástæðum;o)
Áfram HK:)
Skrifa ummæli