Það er bara alveg deginum ljósara að ég mun ekki framar spila skvass fyrir hádegi!! Andsk... djö.... helv.... Það er líka eitthvað að mér, eftir klukkutíma skvass var ég öll ísköld, samt alveg sveitt en ísköld viðkomu, t.d frosin á höndunum, líkaminn er bara einfaldlega ekki komin í gang! Og æðakerfið í mér í einhverju fokki:-/ sem gæti reyndar útskýrt hví ég þurfti á því að halda að fara í æðahnútaaðgerð 27 ára gömul:o( En nú eru þeir farnir, lappirnar á mér fara ansi vel saman með my new nose! hehe, það kemur að því einn daginn að ég þarf sennilega að skipta um kennitölu, það verður ekkert upprunalegt eftir að mér;oþ
Dísús, er kannski búin að koma mér í einhverja vitleysu! Ætla ekki að uppljóstra henni strax, en það gæti mögulega tengst tellíinu á einhvern hátt (ekkert merkilegt samt, hey það væri samt sniðugt, Brynja Björk hnakkamella og Bjarney jakkasmella á djamminu í Sirkus Reykjavík 101, eða hvað sem þetta heitir! Nema það minn hluti myndi gerast allur fyrir miðnætti, gamla konan þarf nottla sinn svefn sko..!) , en ég læt ykkur vita þegar nær dregur, stay tuned! ;o)
Svo er ógleðin ennþá að hrjá mig að hluta, en mér verður samt bara óglatt við tilhugsunina um mat, og ef ég fæ mat fyrir framan mig þá snýst maginn við og ég get ekki hugsað mér að borða! Hef samt alveg lyst á nammo sko, það er alveg magnaður andskoti! En það er ekki í boði núna, þarf að verða mjó bráðum, splæsti á mig 5 tímum í slendertone til að hjálpa húðinni aðeins að dragast saman, og vonandi að minnka aðeins my huge ass! Skil ekki hvernig hann getur verið svona stór miðað við hvað ég æfi mikið:-/ Nottla að einhverju leyti vöðvar, fylgist oft að að vera með vöðvuð læri og vöðvaðann rass, en það útskýrir bara hluta stærðarinnar! Reyndar sagði einn nuddari við mig að ég væri með vöðvafræðilega fullkominn rass (og á engann hátt neitt kynferðislegt við það, þetta var í alvörunni vöðvafræðileg pæling, þetta var samt soldið fyndið, eðlilegt umræðuefni! Hann var samt svo dofinn, var ekki að fatta að mér þætti þetta fremur óþægileg athugasemd liggjandi hálfnakin á bekknum hjá honum!) En hann hefur þá sennilega verið að meina burtséð frá celloinu sem umlykur músklana, held það teljist ekki með..!
Best að fara að kroppatemja síðasta kúnnann, big mama is out...
6 ummæli:
Það þýðir ekkert að vera afsaka sig þrátt fyrir að hafa drullað á sig í skvassi... Ég frétti það allaleið til Noregs að það hefði þurft að smúla glerklefan eftir þetta svakalega tap..:) hehe!!
Jeeeess!! Ég náði að hefna mín, en höfum það samt á tæru að ég elska þig fullt!:)
En annars er klárlega málið að fá sér morgunmat Bjarney mín...!;)
já prófa það næst! Pottþétt það! ;o) Ert samt ekki búinn að hefna þín fyrr en þú vinnur mig í eigin persónu!!
En eins gott að þú elskar mig, annars hefði ég farið inn á bloggið þitt að gera grín að þér! Ó ég er búin að því, úps!! ;oþ
Núnú... Byrjar þessi leikur aftur!
Ég vann þig um jólin þó svo að ég hefði bara verið að hlaupa á eftir strætó í 3 mánuði... Tel það nú bara afrek útaf fyrir sig...:) hehe!!
æjá, þú rumpaðir víst af einhverjum sigrum:-/ gef þér séns;o)
Nú erum við kvitt! Bara ást og hamingja hér eftir..! ;oþ
Samþykkt!!:)
ójá!!
Skrifa ummæli