Magnaður þessi veraldarvefur, og það sem fólk setur á hann. Var að sörfa á einhverjum bloggum og rakst á þetta hjá einni sem ég var að þjálfa í fyrra:
"Talandi um þjálfara þá for ég að pæla. Ég er búin að vera að æfa handbolta núna nokkuð lengi og hef haft alveg... Ööö... Bíðiði aðeins, þarf að telja þá upp, Jáww! Það eru alveg 1,2,3,4,5,6,7...8! Átta þjálfarar, það er slatti. Og þá fór ég að pæla í hver væri besti þjálfarinn. Og ég meina ætli það séu ekki bæði Bjarney og Silla.
Bjarney... Úff, Bjarney. Hún er örugglega eini þjálfarinn sem hefur fengið mig til þess að langa að hætta í boltanum. Og örugglega líka eini sem mig hefur langað til að dúndra bolta i fésið á. En það er bara gott. Ok, nuna hugsa flestir. " Gott?! Er barnið psycho? Mjög gott og eðlilegt að langa að meiða þjálfarann sinn... Akkúrat, númerið hjá geðlækninum!" En það er mjög gott. Hún þrýsti svo mikið á mig að gera betur og hætti ekki að skammast i mér fyrr en ég gerði eitthvað rétt.Hún lét mig vera heilu og hálfu æfingarnar útí horni að skjóta í vegg til þess að þjálfa öxlina. Hún bauðst til að gera það líka í Worldclass á sínum tíma. (Þjálfa öxlina sko... Ekki dúndra i vegg. Pælið hversu asnalega það hefði litið út)Bjarney lét mig líka fá algjört ógeð af handbolta. En hún lét mig elska íþróttina líka. Í alvöru frábær þjálfari og hún kenndi mér mjög mikið. JEIJ!
Gaman að vita að stelpunum mínum þykir svona vænt um mig! Ég meina, langar manni ekki að kasta bolta í fésið á öllum sem manni þykir vænt um?? En tilganginum er samt náð ef hún hefur lært eitthvað, I´m not in this buisness to make friends..! ;oþ
Þeesi skrif hennar sýna mig kannski ekkert í rosalega fallegu ljósi! Ég ætla nú samt að taka þessu sem hrósi;oþ Það má kannski alveg deila um það hvort keppnisskapið mitt sé bara einfaldlega of mikið fyrir 5.flokk!! En svo að þið haldið ekki að ég sé algjör tík þá reyni ég að vera með það prinsipp að hrósa þrisvar sinnum meira en ég skamma , bara svona til að leyfa því að fljóta með..!
Anyways, fór til doksa áðan, lítur allt mjög vel út og hann skammaði mig ekkert fyrir að vera búin að hreyfa mig soldið duglega, sagði að ég þoldi þetta greinilega bara betur en flestir:oD Engar bólgur í fótunum, og frekar lítið marin miðað við normið. Svo sagði hann að ég væri algjör nagli fyrst ég tók engin verkjalyf nema bara fyrsta daginn;oþ hehe, nagli smagli vildi samt ekki taka verkjalyf því þá hefði ég í rauninni aldrei vitað hvort líkaminn væri í standi fyrir æfingu, væri þá bara að blekkja heilann og færi kannski að gera meira en ég hefði þolað (sko ég er alveg skynsöm!!) enginn verkur = má fara æfingu, verkur = þjálfa þá líkamsparta sem ekki eru hnjaskaðir. So where's the excuse??
Vó, keyrði með Tinnu litlu niður Laugaveginn um daginn, dísús keyrði allt í einu framhjá mynd af mér í ca.3 faldri raunstærð!! Í glugganum á gömlu Nike búðinni! (heitir núna 101 eða e-ð) mynd frá mitti og uppúr, og mér finnst hún svoooooo ekki góð, skil ekki af hverju þeir völdu að hafa þessa mynd:-/ mér finnst ég allavegna bara e-ð feit og með hálflokuð augu, og sé allavegna ekki ástæðuna fyrir því að þessi mynd var valin! Oh well hef svo sem ekki séð mynd af mér hingað til þar sem mér finnst ég ekki feit, hey ég veit um góða afsökun: the camera adds fat pounds..! Jamm, ætla að halda mig við það;oþ
4 ummæli:
he he ég ætti þá kannski ekki að koma til þin i einkaþjálfun...svona til að halda heimilisfriðinn :-)
Engar áhyggjur, ég er bæði orðin töluvert rólegri í skapinu (víst! Allavegna pínu rólegri;oþ), og svo er ég líka oftast bara góð í skapinu í einkaþjálfuninni, minni adrenalín í gangi þar heldur en í handboltaleikjum!! Held líka að þessi lýsing sé nokkuð bundin við þennan einstakling, held þeim langi nú ekkert öllum að henda bolta í fésið á mé! :-/ hehe
Hæ Bjarney skemmtileg síða hérna hjá þér. Les þetta reglulega. Veit um nokkrar sem eru mjög ánægðar með þig sem þjálfara, einnig veit ég að foreldrarnir eru ánægðar með þig líka.
Kveðja Ása Fanney fyrrum vinnufélagi þinn á Hrafnistu, mágkona hamrahlíða gellanna.
Hehe, takk fyrir innlitið og kvittið;o)
Gaman að heyra að einhverjar séu ánægjar, held að sú sem skrifaði þessa rosa úttekt á mér sem þjálfara sé líka að mestu leyti ánægð. Þær eru líka komnar með svo breitt bak þessar elskur að maður má alveg bitchast aðeins í þeim! Reyni nú samt að vera skemmtileg svona inn á milli..! ;oþ
En gaman að "heyra" frá þér;o)
Skrifa ummæli