þriðjudagur, apríl 11, 2006

gömlukonutuð;oþ


Ég er búin að komast að því að það er mér eðlislægt að gera meira en ég má! T.d þegar ég var rúmlega 2 ára þá handleggsbrotnaði ég við að klifra uppá eldhúsinnréttingu, man meirsegja eftir því hvað ég var að gera, var að sækja mér eggjabikar, tókst líka svona helvíti vel! En já, ég var allavegna ekki kölluð apabarn fyrir ekki neitt:-/ Var sett í gifs upp að olnboga, en lét það ekki stoppa mig mikið. Fór á róló ekkert mikið seinna, og þegar mamma kom að sækja mig þá voru fóstrurnar í sjokki yfir mér því ég reif mig alltaf úr fatlanum og fór beint í klifrugrindina!
Var svo að hugsa fleiri dæmi í gegnum tíðina, fór að hjóla daginn eftir liðþófaaðgerð (ekki spyrja af hverju mér fannst það góð hugmynd! En ég var ekki með neina verki þannig að ég sá enga ástæðu til að vera að hvíla eitthvað óþarflega mikið! ;oþ)
Fékk einu sinni sýkingu í nýrun, léttist um 3 kg á einum sólarhring og lá bara í keng þar til ég var skikkuð upp á spítala, en fór reyndar fyrst að kenna spinning og svo uppá sjúkró. Læknirinn sagði að fólk væri yfirleitt lagt inn í svona tilfellum en honum fannst ég ekki nógu veikuleg, sendi mig heim og skipaði mér að liggja í rúminu í 3 daga. Þið megið giska þrisvar á hvort ég lá í rúminu í 3 daga, allavegna var íbúðin mín sjaldan jafn hrein og eftir þessi veikindi!
Handarbrotnaði eitt sinn, mætti samt á næstu æfingu, og á þarnæstu æfingu gafst ég upp, fékk skæri hjá húsverðinum og tók af mér gifsið! Ella Beta (uppáhaldshúsvörðurinn í heiminum) talar ennþá um þetta:-/

Jæja, læt þetta gott heita af sjúkrasögum, sennilega fátt leiðinlegra en þegar fólk er að ræða veikindi sín! En já ástæðan fyrir því að ég byrjaði að velta þessu fyrir mér er að ég fór á bretti í gær og skokkaði samtals 11 km:-/ 3 km í gærmorgun, hætti þá því mér var soldið illt í kálfanum, en var svo í þessum litla ham eftir vinnu í gær, fann ekkert til og skokkaði þá á 8.4km hraða í klukkutíma:oD (note to self: muna að spyrja lækninn í dag hvort ég megi skokka!) Eðlilegt...

Hey fór á Ice age 2 á sunnudag, krúttimynd. Fannst samt nr.1 betri, hallast jafnvel að því að það sé vegna þess að mér finnst íslenska talsetningin betri, t.d gerr röddin í Ray Romano ekki neitt fyrir mig! Kannski ég fái Óskar Dag lánaðan til að fara á íslensku útgáfuna, mér fannst allavegna sú fyrri brillliant!

öh held ég hafi ekki meira í fréttum, nenni allavegna ekki meira í bili, later...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hef aldrei verið eins góð í marki (handbolta) og einmitt þegar ég var handleggsbrotin og í gifsi. Ég var valin markmaður mótsins og var svo glöð. En versta var að þá frétti mamma að því að ég hefði farið og keppt en hún og læknirinn voru búin að banna mér það.
Svo brotnaði ég nokkrum sinnum á sama stað á eftir þetta og spurning hvort það hafi verið mér að kenna að passa ekki betur upp á þetta ?
Þeir vita nefnilega ótrúlega margt (og ekki) þessir læknar..

Farðu vel með þig..