Djö, ég fæ nú ekki oft bólur en nú ákvað ein að planta sér á NEFBRODDINN á mér!! Sést nú reyndar voða lítið, sé hana ekki einu sinni ef ég geri mig rangeygða en ég sá hana í spegli og þá finnst mér nefið á mér hafa stækkað! Skelli skuldinni á spegilinn, hey YES það útskýrir þá ýmislegt varðandi rassinn á mér! Sjúkket, hann er sennilega bara pínulítill í alvörunni! *hóst* eða ekki, get víst ekki gera blessaðann spegilinn að blóraböggli í því máli:-/ En talandi um stórann rass, ég er búin að bíða spennt eftir laugardeginum = 50% afsláttur af nammi! :oD En svo er mér búið að vera geðveikt óglatt í 3 daga og langaði ekki í nammi:-/ Píndi mig á æfingu og fór svo bara heim og fékk mér frosin vínber. Jæja, ljósi punkturinn er þá sá að rassinn helst vonandi bara í 2 fermetrum en fyllir ekki í hektarann! Allavegna í bili...
Ég gat samt skokkað á brettinu, fann að það er betra að skokka á 7 km, heldur en að labba á 4.8 km hraða því það rífur minna í saumana í skokkinu, öh ætla samt að spyrja doksa á þriðjudag hvort ég megi skokka! Finn samt ekkert til, þetta hlýtur að vera ok! ;oþ Lyfti svo axlir og tricep, ég er sennilega eina stelpan sem ég þekki sem VILL fá stórar axlir! Kannski af því að ég er eins og kókflaska í lagin:-/ maður er víst aldrei sáttur eins og maður er, en ég er búin að hamast á öxlunum síðastliðin ár, nú HLÝTUR eitthvað að fara að skila sér, langar að geta látið sjá mig á hlýrabol áður en ég dett inná fertugsaldurinn (sem er nú ekkert svo langt í burtu!!)
Dísús, stöðugt að hitta fólk sem les bloggið mitt reglulega, þarf að fara að skella inn könnun aftur varðandi hvort ég þekki you people, ekki eru kommentin allavegna að kæfa mig..!
Jæja, nenniggi meir, er að spá í að fara að kúra með sænginni minni. Oh damn ég þoli ekki þessa ógleði, er alveg lystarlaus en samt svöng og þegar ég er svöng þá verð ég grumpy:-/ hamingjuhux hamingjuhux, koma so. Jebb þetta tókst er komin í gott skap, en krakkinn byrjaður að grenja, þa'bbara ekkasog og allt saman ætli eróbikkparið byrji þá ekki heimaleikfimina innan skamms, *halda í góða skapið* túddúrú, finna eyrnatappana, hey get líka plöggað iPodinum mínu í heilabúsgöngin (nýyrði yfir eyru, ég fann það upp:oD), búin að fylla inn fullt af nýrri tónlist:oD Líf og fjör, hey the crazy kid er hættur að grenja! Öh eða kannski heyri ég bara ekki í honum útaf eyrnatöppunum? Það væri samt skrýtið af því að ég er ekki búin að setja eyrnatappana í mig, furðulegur veruleiki sem við búum í! Eyrnatappar sem virka án þess að setja þá í eyrun, nei ég meina í heilabúsgöngin! Humm, ég held ég sé komin með rugluna, svona hungur fer ekki mjög vel með mig, ég er sennilega komin með vannæringu og heilann vantar orku til að starfa rétt, ok ok borðaði reyndar síðast kl.19, sennilega ekki mikil vannæring í gangi, öh æeg kenni þá bara speglinum um þetta líka, fín lausn...
Vó ef einhver nennti að lesa þetta allt þá bið ég viðkomandi um að kvitta fyrir sig og ég sendi honum glaðning um hæl, svona "besta-ástundun verðlaun" magnaður árangur að leggja þetta á sig (Vinsamleg tilmæli frá ritstjóra: "hællinn fylgir samt ekki með glaðningnum, viðkomandi er beðinn um að skila hælnum þegar gjöfin hefur komist til skila")
Kræst, nú er ég hætt! Bæbbli....
9 ummæli:
Hehehehe ég nennti að lesa ;)
Vona að þér líði betur !
kvitt, kvitt!
Hafðu það gott um páskana og endilega vertu í sambandi ef þú átt leið um Akureyrina ;)
Ágætis lesning, hæfilega súrt fyrir minn smekk. Hvaða röfl er þetta um rassin og axlirnar á þér ???
meintirðu ekki að þú litir eins út og súperdós
og það er mjög gott að þú sert kominn með blóraböggul fyrir útlitinu
Svei mér þá... mig grunar að þessi vínber sem þú étur séu farin að gerjast og orðin áfeng... og þú þar af leiðandi drukkin að skrifa síðustu færslu... Ekki það að huxið er í góðu lagi,en að setja það á netið er annað mál;)
ég komst í gegnum þennan texta!:)
Ég líka :-)
kveðja,
árný
hæhæ datt inn á síðuna þína og hef kíkt reglulega inn. gaman að "lesa" þig..
Komst nú auðveldlega í gegnum þetta, samt spurnig bæði með nammióþolið og hýrabolinn
Skrifa ummæli