Ég á einn óþolandi vin sem er stöðugt að reyna að starta samræðum við mig um tilgang lífsins (er samt að reyna að skilyrða hann með því að lemja hann í öxlina um leið og hann byrjar og vona að hann hætti að reyna að starta þessarri umræðu!) en honum hefur samt að einhverju leyti tekist ætlunarverk sitt, ég lá undir feldi áðan að spá í þetta, eða reyndar lá ég undir sæng en það er aukaatriði "póteitó potato" en jáég var sem sagt að spá hvort tilgangurinn er sá að öðlast hamingju og halda henni, en hvað veitir manni hamingju? kannski háskólagráða eða börn eða forstjórastaða eða að hafa það bara fínt á atvinnuleysibótum, skiptir kannski ekki öllu, misjafnt hvað veitir manni hamingju. Þá fór ég að spá ef tilgangurinn er að vera hamingjusamur og sáttur við það sem lífið hefur uppá að bjóða hvað gerist þá þegar maður deyr? Er maður þá búinn með level 1 og fer í næsta "borð"? Humm hvað ætli bíði manns svo þar?
Aaargh sko þetta er ástæðan fyrir því af hverju ég nenni ekki að taka þátt í svona samræðum, þær gera mann bara geðveikann!!! Bara drullast til að reyna að öðlast það sem maður þráir (innan raunsærra marka of course, er ekki að falast eftir heimsyfirráðum!) en jafnframt njóta þess sem maður hefur, það er eini tilgangurinn fyrir mér. Ekki mikið yfirnáttúrulegra en það!!
En aðal ástæðan fyrir því að ég lagðist undir feldsængina mína var til að íhuga hvort yngri flokka þjálfun sé worth it. Þessar túrneringar eru algjör dauði, leikmenn alveg búnir á því, að drepast í öxlum, hnjám o.s.frv, ein hjá mér fékk heilahristing (en spilaði samt áfram, þvílíkur nagli! Enda komin af afar góðum ættum;o)) þjálfarinn (ég í þessu tilviki) orðinn raddlaus og að lokum farinn að efast um eigin þjálfunarhæfileika þegar liðið manns spilar langt undir getu (sem er samt kannski ekki óeðlilegt miðað við að spila kannski 5 leiki á 2 dögum þar sem gert er krafa um hámarks afköst allann tímann!) og til að bæta gráu ofan á svart eru stundum settir svo hundlélegir dómarar hjá þessum krökkum að það er algjör hneisa! Rétt svo anda í flautuna en vita svo varla hvað þeir ætla að dæma, algjörlega óþolandi! Þó að ég láti dómarana ekki oft heyra það þá er þetta verulega svekkjandi oft á tíðum. En svo var einn dómarinn að passa sig á að ég myndi örugglega heyra það að Gróttu, Fram og VALS þjálfararnir væru ógeðslega leiðinlegir! Það var reyndar miðaldra kelling sem kann ekki handbolta en ég sagði ekki múkk við hana allann tímann! Hins vegar öskra ég mikið á mína leikmenn, hvort sem er til að hrósa eða skamma (leiðbeina vil ég nú samt meina, og þær vita það!) Reyndar fór ég og talaði við hana í hálfleik og sagði að mér fyndist í lagi að benda þessum stelpum á að það er ekki leyfilegt að rífa aftan í og taka harðar á bakhrindingum, einfaldlega til að kenna þessum stelpum það, var líka að tala um mínar, og að reka þær bara útaf til að sýna að þetta er ekki ok! Þetta er bæði stórhættulegt og þetta má ekki í handbolta! En já, ég er nottla ógeðslega leiðinlegur þjálfari að hafa hagsmuni krakkanna í fyrirrúmi, hlýt þá að hafa verið jafn leiðinleg að sækja eina í hinn enda bæjarins kl.7:10 í morgun af því að farið hennar klikkaði, eða þegar ég læt þær hafa pening fyrir nesti af því að þær gleymdu sínu, og ég hlýt að vera skelfileg fyrst að ég sendi sms áðan á þær sem voru meiddar til að minna þær á að kæla meiðslin! Þessir dómarar mæta bara og geta skemmt leiki og jafnvel leikmenn (með því að taka ekki harðar á grófum brotum) og það er ekki einu sinni spáð í það liggi margra mánaða vinna að baki hjá þjálfurum og leikmönnum, OG SVO ER ÞAÐ ÉG SEM ER SÚ LEIÐINLEGA!! Jæja nenni ekki að tuða meira um þetta, yfir heildina litið spiluðu stelpurnar mínar stórvel og á morgun eigum við leik um 5.-6.sæti, stefnum á að klára mótið með sigri;o)
Farin...
2 ummæli:
hæ hæ Bjarney mín ég skil alveg þennan pirring þinn..þetta er ástæðan fyrir því að mér er svo illa við að dæma sama hvaða aldur það er - ég er svo lélegur dómari og óörugg að það græðir enginn á að láta mig dæma...en málið er bara þvi miður að það eru svo fáir sem hafa áhuga á að dæma hvað þá taka dómararéttindi og á meðan svo er þá verður þetta víst svona...fúlt..en gangi ykkur rosa vel að keppa ÁFRAM VALUR
Held ég hafi orðið pirruð á að kellingin hafi verið gaspra um það frammi hvað ég væri leiðinlegur þjálfari, ég sagði ekki neitt við hana, hún er greinilega bara ofur hörundssár, og ekki mjög þroskað af henni að láta svona. En svona er þetta, það hefur víst allt sína kosti og galla...
Skrifa ummæli