Þetta er fu$%ing fötlun! Þessar helv... harðsperrur eru að gera mér gramt í geði! Ok skal reyndar viðurkenna að ég fór ekki varlega af stað á fyrstu fótaæfingunni minni í 3 vikur, ákvað að það hlyti nú að vera í lagi að lyfta 3 vikum (-2 dagar) eftir aðgerð en þegar ég var komin af stað þá GLEYMDI ég öllu um einhverja aðgerð og þar sem ég var í góðum gír þá ákvað ég að taka soldið vel á því, sérstaklega hamnum sem er uppáhaldsvöðvinn minn:oD En ég fékk það sem sagt feitt í bakið (eða réttara sagt fæturna!) og hef labbað eins og níræður bóndi í 2 daga:-/Samt alveg magnaður andskoti, að vera búinn að lyfta reglulega í 5 ár en samt fá ALLTAF sperrur, getur orðið píííííínu þreytandi! En samt pínu gott að vita að maður var að gera eitthvað, en stundum eru sperrurnar sem ég fæ það slæmar að ég er hálf fötluð í hreyfingum! Væri alveg til í einhvern smá milliveg..!
Nenniggi mier, þarf að fara að lúlla, æfing með Evu minni í fyrramálið og ég er búin að lofa að vera ekki lengi að gera (löööööng saga, og sennilega svona had-to-be there!) elska samt þegar ég fæ tækifæri til að æfa sjálf á morgnana og geta svo eytt góðum tíma í eftir-á-brennslu og teygju, love it! :oD Og sennilega gæti ykkur ekki verið meira sama! best að hætta þessu tuði...
Anna, þurfum að finna skvasstíma.
Edda, þurfum að finna re-match tíma.
Gréta, við líka!
Held ég sé búin að koma öllu til skil, nema kannski: "Svebbi" þú lætur mig svo bara vita ef þú ætlar að taka sénsinn á skvasseinvíginu sem stóð alltaf til, hefur bara samband þegar þúrt búinn að safna kjarki;oþ Hehe, af því að ég er geðveik ógn sko! Millimeter frá því að leggja spaðann á hilluna vegna skorts á hæfileikum:-/
Vá hvernig fer ég að því að blaðra svona mikið, ég er faaaaaaaaarin!
7 ummæli:
Ég er laus eftir þrjú í dag ;)
It´s a date, lofa að ég skal reyna að sökka ekki! ;oþ
svakalega varstu ekki lengi í morgun ... vel gert! þér fer fram
Eva
ég er alltaf til að spila skvass. Vertu í bandi
kv. Gréta Rún
Gréta, nennirðu að senda mér mail svo að ég hafi netfangið þitt og jafnvel láta símanr. þitt fljóta með...
Hey ég labba fram hjá þér á hverjum degi á leiðinni í vinnuna!Ekki leiðinlegt að sjá gelluna sæta og brosandi á 101 sport ;)
hahaha, já fallegu ógeðismyndina! ;oþ en vinkaðu mér næst (hehe, eðlilegt að vinka plakati!;oþ), ég sendi þér fallegt hux í staðinn;o)
Skrifa ummæli