sunnudagur, apríl 30, 2006

eðlilegt jájá

Eðlilegt að sitja upp í Sporthúsi núna að blogga!! En ég ákvað að skella mér á æf upp úr kl.21, og ég var soldið hissa á hversu margir voru á svæðinu, kom skemmtilega á óvart.
En ég hitti nokkra gutta sem eru að æfa hér, m.a einn af HK strákunum sem ég fór með til DK. Þeir komu til mín og þá hafði einn af þeim (guttunum í Sph.) verið að dæma leikinn þar sem ég missti mig yfir dómgæslunni (eini leikurinn í mótinu, án gríns, ég er ekki mikið að tuða í dómurum!) En hann var ekkert smá sætur og sakleysislegur og ég fékk heavy móral og baðst afsökunar á að hafa verið fífl:-/ sem betur fer voru no hard feelings!
En svo spurði ég hann hvað hann væri gamall, FIMMTÁN AÐ VERÐA SEXTÁN! Hvaða grín er það að hafa svona unga dómara?? Stelpurnar mínar eru á 13. og 14. aldursári þannig að þetta eru næstum því jafnaldrar þeirra! Ég sagði einmitt við hann að það væri ekkert við þá að sakast, þeir væru einfaldlega bara of ungir til að dæma hjá þessum flokki þar sem þetta er alveg orðin soldil alvara. Og þetta gerir dómarastéttinni alls ekki gott að setja óörugga krakka í dómgæslu, svo er þeim úthúðað (hann sagði að foreldrarnir hefðu reyndar verið miklu verri en ég! huh! sko, ég er ekkert svo slæm;oþ) en já, þeim er úthúðað þannig að þeir dæma enn verr, og svo situr þetta svo í þeim að þeir munu aldrei vilja dæma aftur! Félögin sem eru að halda þessi mót verða aðeins að hugsa sinn gang, það er engum greiði gerður með þessu...

Jæja, ætla heim að lúlla, þarf reyndar ekki að byrja að vinna fyrr en kl.9, sweeeeet:oD

later...

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Áfram HK!

bjarneybje sagði...

jájá, þeir mega samt alveg taka sig á varðandi ýmsa hluti t.d á þessu móti...

Nafnlaus sagði...

Æji hvaða væll er þetta... Það eiga öll lið á Íslandi í vandærðum með að skaffa dómara á svona "túrnerningar". Þó svo að ég sé alveg sammála þér þá er bara ekkert við þessu að gera, allavega ekki eins og handboltinn hefur þróast síðastliðin ár.
Ef þetta á að breytast 1hvað þá verður HSÍ að taka sig á, það er allavega fyrsta skrefið...

Nafnlaus sagði...

HSI er ekkert annað né meira en félögin sjálf.

Hafrún

bjarneybje sagði...

Þetta er ekkert væll, ég er líka að tala um þessa krakka sem eru að dæma, það er ekki að gera þeim gott að dæma og 50 manns að úthúða þeim! Það gerir bara það að verkum að þau vilja ekki dæma aftur og dómarastéttin mun líða enn meira fyrir það!
Það á bara að skikka meistaraflokksleikmenn (sem eru yfirleitt með meira bein í nefinu! Af því að oft er dómgæslan bara slök vegna óöryggis dómaranna) til að dæma þessa leiki, þeir eru ekkert of góðir til að vinna aðeins fyrir klúbbinn sinn, það er allavegna mín skoðun...

Nafnlaus sagði...

Enda er ég alveg sammála þér...
En þetta er samt í höndunum á HSÍ að sjá til þess að "börn" séu ekki að dæma svona leiki... Ef að HSÍ er ekkert annað né meira en félögin sjálf, eins og Hafrún segir, af hverju eru þau þá ekki búin að koma í veg fyrir svona lagað? Tja, kannski að því að það er miklu auðveldara fyrir liðin að kasta þessum ungu og óreyndu dómurum inn á völlinn... Þeir eiga allavega töluvert erfiðara með að segja nei, held ég, og því er svo gott að misnota sér það.
Það er ekki nóg fyrir eitt félag að standa í því að sýna fordæmi... HSÍ verður að koma þarna inní!!