Oh ég er svo gáfuð! Var svo mikið að passa mig að laumast ekki í RISA páskaeggið mitt í gær að ég gleymdi eiginlega að borða, fyrir utan (kemur sennilega mjög á óvart!) slatta af frosnum vínberjum og svo eina lúku af þurrkuðumdöðlum síðar um kvöldið. Planið núna var að fara í brennslu á fastandi en ég vaknaði svo geðveikt svöng að ég ákvað að fá mér einn banana svo ég verði ekki mjög töff og láti líða yfir mig á brettinu eða e-ð! Ákvað því að blogga á meðan bananinn meltist aðeins;o)
Úff, var feisuð feitt í gær! Ein yndisleg mannvera ákvað að vera enn yndislegri og gaf mér páskaegg nr.7 frá Nóa Siríus!! (reyndar svokallaður bjarnargreiði þar sem ég má engann veginn við páskaeggi nr.7:-/ En hugsunin engu að síður mjög falleg;o)) En já, ég er nottla svo mikill nammigrís að ég laumaðist aðeins í það í gær, tók lokið úr að aftan og byrjaði að japla aðeins á því, sá þá málsháttinn gægjast út og ég kíkti á hann:"Hægara er að kenna heilræðin en að halda þau"! Eins og ég segi, þetta var þokkalegt feis á einkaþjálfarann sem mælir ekki með því að fá sér páskaegg 4 dögum fyrir páska!! Ég líka pakkaði bara egginu inn í poka og ætla að taka það með mér upp í sumó á eftir, leyfa hinum að njóta þess að fitna með mér;oþ
En vá hvað ég hlakka til, fæ að hafa alla 3 gaurana hjá mér á einu bretti! Myndi knúsa þá í drasl ef þeir væru ekki komnir með svona mikinn sjálfstæðann vilja! Misjafnt hvað þeir eru að leyfa manni að krúttast í sér. En ég get þá bara unnið þá í fótbolta eða eitthvað í staðinn, ofurfrænkan þarf nottla að standa undir nafni!!

Hey fyndið, var hjá lækninum í fyrradag, og var að borga með debetkortinu og ég er s.s með mynd af mér með þá á kortinu, æ ég læt hana bara fljóta með. Og konan sem tekur við greiðslunni segir mér að þetta séu afskaplega falleg börn, og þegar ég segi henni að ég eigi þá nú ekki sjálf heldur systur mínar, þá segir hún: "já þú ert nottla alltof ung til að vera komin með 3 stk" Ég kyssti hana á kinnina og labbaði út:oD OK reyndar kyssti ég hana ekkert á kinnina, en mig langaði það! ;oþ Hún var s.s ekki alveg að gera sér grein fyrir að ég væri 27 ára, því það eru alveg til dæmi um 27 ára, 3 barna mæður. Hrukkurnar mínar eru kannski ekki alveg jafn áberandi og mér finnst, ætla allavegna að telja mér trú um það;oD
Jæja, ætla að fara að gera mitt ready fyrir æfingu, bananinn sennilega orðinn hálfmeltur!
Hafið það rosa gott í fríinu ykkar, ég kem heim á föstudag, er að vinna á sambýlinu á lau en eyði svo páskadegi og 2. í páskum ein með sjálfri mér, ætla reyndar vera ógeðslega dugleg að æfa, en ef einhverjum vantar göngutúra böddí or something þá er bara að hafa samband;o)
Ætla ekki að segja gleðilega páska því ég kem pottþétt með færslu fyrir páskadag!
Later;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli