Jæja Snorri idol stjarnan 2006, get ekki annað en dregið þá ályktun að það að tengjast mér á einhvern hátt sé merki um að ná langt. Fyrir nýlega lesendur bloggsins þá er ég og Kalli Bjarni frændsystkini (svo má fólk alveg deila um hvort það sé e-ð til að hrósa sér af, en mér er alveg sama, mér þykir vænt um hann og er stolt af honum) og Snorri og Alexander báðir æskuvinir mínir, Snorri var fyrsta "crushið" mitt, vorum svona leynikæró, en ég held samt að það teljist ekki með af því að ég var bara 8 ára! Hann var reyndar 10 ára, það gæti talist með..! hehe kannski ekki:-/ og svo buffaði ég Alexander í karate-inu forðum daga (gera vinir það ekki??) eins og OFT hefur komið fram (já nei, ég er víst þessi hógværa týpa!! ;oþ)
En já, það var samt ástæða fyrir þessum skrifum! Fólk í kringum mig virðist vera að ofmetnast aðeins við það eitt að þekkja mig, og vil ég því biðja alla (Hafrún) um að halda ró sinni og ekki endilega flækjast upp á svið með míkrófón í hönd, þetta er EKKI, ég endurtek ekki ávísun á að þið (Hafrún) getið endilega sungið! Held þetta sé frekar það sem kallast tilviljun eða einfaldlega enn ein staðfestingin á því að á þessu skeri þekkja allir alla! Og já, það er meira að segja líklegra en hitt, að ég muni afneita öllum tengslum við viðkomandi (Hafrún) ef ég rekst á ykkur gólandi á almannafæri!
Jæja, ætla að reyna við beddann minn, happadýrið out...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli