fimmtudagur, mars 30, 2006

Varúð, langt blogg!

vá ég er bara alveg tom i hovedet þessa dagana:-/ Bloggið ekki alveg mín sterkasta hlið um þessar mundir! En best að reyna allavegna...

Ég er ekki að trúa því að það sé enn og aftur komin helgi, það er ALLTAF helgi! Græt það samt ekki sko:oD Reyndar vinnuhelgi á sambýlinu, alveg týpiskt að þá er mér boðið í 3 afmæli á laugardagskvöldið! Hafdís Hinriks, Lilja Vald og Ívar Guðmunds öll orðin árinu eldri, til hamingju með það peeps;o* Ætla samt að reyna að kíkja aðeins til Lilju þar sem það er nánast í leiðinni heim af sambýlinu, bara aðeins að kíkja inn og kasta kveðju, var að spá hvort ég ætti að kíkja til Íbba en það er haldið á skemmtistað down town og ég er ekki alveg að nenna þangað, afmælið sennilega líka búið að leysast upp þegar ég er búin að vinna á sambýlinu:-/ En sambýlismennirnir fá aftur að sjá mig sæta og fína (eins og fyrir "eitís"-þema djammið, þá var ég GEÐVEIKT sæt!! ;oþ)

Einu sinni í mánuði þá HATA ég að vera kvenkyns, og það er akkúrat að ganga yfir mig núna:-/ Shit hvað ég verð líka leiðinleg!! Ótrúlegt hvað þetta fer í skapið á mér. Náði samt að halda kúlinu í skvasskennslunni í dag:oD Það er óttaleg klisja þegar fólk er spurt hver sé erfiðasti andstæpingur þess og það svarar: "ég sjálf/ur" en þetta er samt alveg ótrúlega sönn klisja! Finn það svo ótrúlega vel í skvassinu, ef ég missi stjórn á skapinu og byrja að pirra mig á hlutunum þá fer einbeitingin út um þúfur og ég get ekki drullu, en þegar ég næ að halda kúlinu og er yfirveguð þá fara hlutirnir allt í einu að ganga upp. Það sem er soldið magnað við þessar íþróttir er að maður getur alveg yfirfært þetta að mörgu leyti á lífið. Hvernig maður getur stundum alveg verið hryðjuverkamaður í eigin lífi! Og hvernig maður verður það sem maður hugsar. Yfirleitt fær maður það sem maður býst við, og það er alveg undir manni sjálfum komið hvort maður hugsi jákvætt eða neikvætt. Sorry að ég sé að tala um eitthvað svona alvörugefið! Þarf eiginlega bara að vera að minna sjálfa mig á þetta núna, ég er t.d atvinnumaður í svona sjálfsniðurrifum! Ef einhver hrósar mér þá er ég sannfærð um að sá/sú sé annaðhvort að djóka eða bara vera kurteis, þó ég reyndar byggi sjálfsmynd mína ekki á áliti annara, þá fyrst er maður kominn á hálann ís (en ég hef alveg mjög heilbrigða sjálfsmynd og fínt sjálfstraust, en það er ekki tilkomið vegna þess að ég taki mark á öðrum, er alveg dugleg að hrósa mér sjálf;oþ) Æ veit ekki alveg hvernig ég á að koma frá mér því sem ég er að reyna, kem bara með smá dæmi:
Ég á mjög góðann vin, við erum ótrúlega lík að mörgu leyti og svipað þenkjandi. Hann hefur þó eitt framyfir mig, og ég lít endalaust upp til hans fyrir það, og það er að hann veit hvað hann vill, og lætur engann segja sér hvað hann getur eða getur ekki. Og hann segir líka sjálfum sér að hann geti allt sem vill og ætlar sér. Og ég held líka að hann geti allt sem hann vill og ætlar sér, t.d fór hann í viku til AC Milan í starfskynningu (helv... gerpið! öfundaði hann EKKERT), og það er gott dæmi um muninn á okkur, ég hefði aldrei einu sinni REYNT! Væri bara búin að ákveða að ég fengi það ekki, sem þýðir að sjálfsögðu að ég fæ það alveg örugglega ekki! Ég held að þetta sé einmitt mest stoppandi factorinn hjá fólki, lætur ekki einu sinni reyna á hlutina því það er búið að dauðadæma það án þess að prófa. Ótti við höfnun spilar sennilega líka e-ð inní, langar engum að vera hafnað, en í rauninni er það samt skárra heldur en að hafna sjálfum sér fyrirfram..!

Humm, og ég hélt ég hefði ekkert að segja! Vona að þetta hafi meikað eitthvað sense, veit samt ekki hvort ég skilji einu sinni sjálf hvað ég er tuða! Hormónin sennilega eitthvað að spila með mig, það er t.d ástæðan fyrir því að ég ætla aldrei aftur á pilluna, hef gert nokkrar tilraunir, en eftir að ég fór að grenja yfir UNCLE BUCK þá ákvað ég að þetta væri fullreynt, má ekki við svona hormónabrengli! Verð alveg ónýt á (jafnaðar!) geðinu:-/Og fyrir utan það finnst mér það óeðlilegt, ónáttúrulegt og neita að viðurkenna að það sé hollt að dæla í sig kvenhormónum frá unga aldri! (og nottla alls ekki karlhormónum! hehe, það væri sennilega ekki mjög töff að vera 14 ára stelpa með skeggrót;oþ)

Vá, komin í ruglið, farin að lúlla, bleh bleh

2 ummæli:

Eva sagði...

ekki það að ég ætli að vera með neinu sölumennsku hérna en ég verð bara að segja þér að það að vera á pillunni hefur mun fleiri kosti með sér en að vera ekki á pillunni.... þú minnkar líkurnar á legkrabbameini og eggjastokkakrabbameini, egglostíðnin minnkar sem þýðir að þú "sparar" eggin þín og að verkirnir við hverja blæðingu verða minni og síðast en ekki síst þá máttu alveg taka 3-4 spjöld í einu (fer eftir því hvað þú þolir án þess að fá milliblæðingu... oftast gengur best með 3) og þá ferð þú þ.a.l. bara á blæðingar þriðja hvern mánuð!! Verð kannski líka að telja upp ókostina/áhætturnar við pilluna, en það er aðallega DVT (djúp-venu-thrombosa.... man ekki alveg hað það kallast á íslensku) og brjóstakabbamein. Áhættan á brjóstakrabbameini er hins vegar eingöngu meðan þú ert á pillunni (og er hún ekki mikil) en pillan verndar þig við leg-og eggjastokkakrabbamein jafnvel 10 árum eftir að þú varst á pillunni.....

... jú, kannski að þetta hafi verið smá sölumennska hjá mér, en eftir að hafa klárað kvennlæknisfræðina (í dag, btw, þá tel ég eiginlega nauðsynlegt fyrir stelpur/konur að vera á pillunni, þ.e. ef þær eru ekki að huga að því að verða óléttar!!). En auðvitað getur verið smá leiðinlegt að finna þá pillu sem hentar hverjum og einum..... en ef þú veður mjög viðkvæm, biddu þá um pillu sem ekki inniheldur hátt hlutfall af gestageni!

bjarneybje sagði...

Ég hef prófað flestar tegundir, verð bara endalaust viðkvæm og með stuttann þráð, finnst líka matarlystin aukast:-/ prófaði meirsegja einhvern lághormóna hring um daginn, nenni ekki að standa í þessu, ef ég mun einhvern tímann leggja í þessi kallamál þá verður bara að gera aðrar ráðstafanir..! ;oþ