miðvikudagur, mars 01, 2006

Lopasokkar? neibb, just my legs...

Fór í þessa litlu nebbaaðgerð í dag, ekki mjög þægilegt að láta deyfa nebbann, var dofin niðrí framtennur. Svo var hann ekkert að setja nitt yfir andlitið á meðan hann skar þannig að ég var alltaf að laumast til að kíkja en vildi samt ekki gera of mikið af því vegna þess að mar verður nottla rangeygður og kjánalegur þegar maður er að reyna að horfa á nefið á sér, og ég vildi ekki taka sénsinn á að doksi myndi fara að hlæja og með þennan beitta hníf þá var það ekki worth the risk!
Hann var búinn að segja ég yrði ekkert frá vinnu eða æf. eða neitt þannig að ég tók hann bara á orðinu og skellti mér í spinning áðan. Þessi karloríukeppni er að virka feitt, reyndar er þetta soldið ósanngjarnt gagnvart Önnu Rut þar sem ég er stærri og þyngri en hún og brenni þ.a.l meira við sama work out, hins vegar er ég svo að keppa við nautmassaðann 100 kg. karlmann, sem er ekkert sérstaklega sanngjarnt gagnvart mér! Þannig að allir þurfa bara að leggja sig 150% fram (því hann getur nottla ekki æft 2-3x á dag eins og ég, ef þess þarf!) og með þessu áframhaldi þá verður maður kannski orðinn sundlaugabakkaæfur í sumar..! ;o)

Jæja, ætla að skella mér í shower áður en ég fer í vax trítmentið mitt, láta fjarlægja lopann af leggjunum;oþ (hey thanks for sharing Bjarney, skil hreinlega ekki hví þú ert á lausu..!)

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

:(

Nafnlaus sagði...

Ég skil ekki af hverju þú ert á lausu, er ég ekki stöðugt að reyna að pimpa þig??? Just say the word, I've got them lined up :)

Nafnlaus sagði...

Fannar; það verður þá að vera eitthvað almennilegt í boði!!! ;)

Nafnlaus sagði...

I got plenty of hot young studs just waiting... :)

Nafnlaus sagði...

Fannar, ertu að æfa í þig í útlensku eða er íslenski orðaforðinn ekki betri en þetta?
Orri....

Nafnlaus sagði...

Ima djust stjúpíd æ gess ;)