VÁ! Það er það eina sem ég get sagt! Þessi ferð er algjörleg ógleymanleg!Við vöknuðum kl.3 aðfaranótt laugardags og hófum gönguna kl.4:20 (ég hugsaði mikið til þeirra sem voru á sama tíma að skríða heim af djamminu, sem er einmitt álíka gefandi *hóst* hehe)
And the raisin at the end of the hotdog er klárlega sú að fá glampandi sól og heiðskírt nánast allann tímann:oD Kom smá þoka ca 2 mín. eftir að við komumst á toppinn, og var í ca. 20-30 mín. en svo tók sólin aftur til við að skína. Myndin er tekin á toppnum, frá vinstri: Sandra, Eva, Haraldur Örn (Everast-klifrarinn) og moi:oD Við vorum 136 manns sem fórum upp með Ferðafélagi Íslands og 135 kláruðu á toppinn. Hópnum var svo skipt á 12 línur, ca.10-12 manns á línu og svo einn leiðsögumaður. Við fórum á næsthröðustu línuna og Haraldur (eða Halli eins og við köllum hann núna;oþ) leiddi okkar línu:oD sem þýddi að við vorum fyrst á toppinn en síðust niður því hann var yfirleiðsögumaður, en svo náðum við hinum línunum soon;o) Vorum samt klárlega skemmtilegasti hópurinn, Eva fór í snú snú með 2 gaurum á meðan við biðum eftir hinum hópunum og meira af svona eðlilegu hlutum. Ég og Sandra vorum m.a með smá eróbikk til að liði héldi á sér hita, ég var nú reyndar sökuð um skort á hugmyndaflugi þegar ég byrjaði eróbikkið mitt á því að ganga á staðnum, wonder why! Hehe, bara búin að ganga um 14 km. þegar þarna var komið við sögu og um 11-12 km eftir þannig að kannski átti þessi gagnrýni alveg rétt á sér, sennilega ekki spennandi að ganga á staðnum í ljósi aðstæðna!! Svo sleppti Halli okkur úr línunni aðeins ofar úr brekkunni en átti að gera og ég spurði hvort við mættum hlaupa niður, og hann sagði já:oD hlupum samt bara um 3-400 m, niður í 1100 metra hæð og svo skaut ég á hann að hann hefði verið lengi niður þegar þau loksins komu. Hann sagði að hann væri það miðað við okkur þar sem við hefðum verið eins og kálfar að vori, nýsloppnir úr fjósinu. Mér þótti afar vænt um tillitsemina og þakkaði honum fyrir þar sem sennilega líktumst við frekar beljum heldur en nokkurn tímann kálfum! Með bakpokana, hlaupandi ofaní hnédjúpum snjó, og baðandi út höndum til að reka ekki göngustafina í, efast um að þetta hafi verið mjög tignarlegt! En massa gaman! Kláruðum svo síðustu 1100 metrana og vorum komnar niður um kl.18, vorum s.s 14 tíma á göngu. Við sáum líka snjóflóðið sem féll um daginn, virkaði voða lítið og krúttaralegt, þó að það hafi sennilega ekki verið mjög krúttlegt að lenda í því! Ég sá líka einn gaur detta oní sprungu, en hún náði ca. uppað lærum, ekki mjög stór, en kryddaði aðeins ferðina;oþ Og línurnar þjónuðu einmitt þeim tilgangi að hífa okkur upp úr sprungum ef ske kynni að við myndum detta oní eina slíka (bara svona til að setja ykkur aðeins inn í þetta;o))
Ákváðum svo að fara aftur í bæinn í gær, þó að við værum þreyttar þá fannst okkur meira spennandi að vakna í okkar eigin rúmum heldur en að þurfa að vakna í tjaldi og eiga eftir að pakka saman og svona. Og í mínu tilviki var líka mjög góð tilhugsun að komast í fangið á kallinum og á fá táslunudd og sonna:o) Ég lét hann vita að ég kæmi fyrr heim og spurði hvort hann væri byrjaður að plana móttökupartýið, hann sagði jú en ég hélt hann væri að grínast. Þegar ég kom svo innúr dyrunum þá var kominn upp risaborði (gerður úr ca.7 A-4 blöðum, límdum saman!) og á honum stóð:"VELKOMIN HEIM" og undir:"Uppáhalds fjalla-garpínan mín" Og svo meira af litlu krúttlegu;oD Og var svo nánast vakin með kálfa- og táslunuddi, algjör snilld! Gerist ekki betra!
Er samt nánast tilfinningalaus í báðum stóru tánnum, mjög spes. En engin hælsæri eða blöðrur eða neitt. Haraldur ráðlagði öllum að setja sportstape áður en haldið var af stað og það svínvirkaði, engin sem lenti í teljandi vandræðum með eitthvað svoleiðis. Og ég er merkilega fín í skrokknum, bara með sperrur eins og eftir góða æf., og jú er reyndar sólbrunnin á ca. 2 fersentimetra svæði, hægra megin á nefinu, ótrúlega töff! En að öðru leyti ótrúlega góð, hefði t.d alveg treyst mér á Esjuna í dag ef ég hefði haft einhverja ástæðu til þess, hreinlega bara nennti því ekki. Fór fekar með Huldu sys og Óskari Degi á Apavatn að heimsækja mömmu og pabba í útilegum þar var hvort sem er trampólín sem ég gat fengið útrás á:oD Kellan spræk, ákvað að kenna strákunum að taka afturábak heljarstökk og sonna þetta helsta, þó að ég reyndar bannaði þeim að reyna, tók ekki séns á neinum hálsbrotum! Skemmtilega týpan;oþ
Ég og Hafrún ætlum svo að gera vel við okkur og skella okkur í baðstofuna í Laugum á morgun. Taka góða æf, býst reyndar við að ég fari bara að hlaupa, góðar teygjun eftir á og svo bara slökun í potti og gufum. Ætla að skella mér aftur í ísvatnið:oD Er strax farin að hlakka til að fara á Fimmvörðuhálsinn næstu helgi, þetta verður algjörlega ávanabindandi að stunda svona brölt!
Jæja nenni ekki meir, enda orðin ansi löng færsla! Til hamingju ef þið nenntuð að lesa hana alla!! ;o)
4 ummæli:
Váááá hvað þetta hefur verið ótrúlega gaman! Mig langar bara að skella mér í svona ferð á morgun! Hefði gefið mikið fyrir að sjá ykkur hlaupa niður eins og bjánar ;)
Hahaha já það var snilld! En þið fótboltaplebbarnir eruð alltaf vant við látnir á þessum árstíma:-/ Tek ykkur plebbana með mér þegar þið hafið lagt skónna á hilluna;oþ
Everest 2017 ?
hæbb!! nennti ekki að skrifa ferðasöguna á bloggið mitt fyrst að þú ert búin af því, en ég setti í staðin nokkrar myndir inn (fæ alveg fiðring í magann!!)
Skrifa ummæli