Það var heimsfrétt að Saddam Hussein fór í hungurverkfall á dögunum til að mótmæla morði á einum lögfræðingi sínum (ég hélt reyndar að lögfræðingar væru réttdræpir (sorry Eva:-/) eeeeeeeen greinilega ekki) en já það var rosa mál, Saddi í hungurverkfalli. Hann sleppti hádegismat en svo var hann orðinn svangur um kvöldið, (og sennilega verið búinn að átta sig á að mótmælin væru ekki að gera mikið gagn þar sem gaurinn var jú allready dauður!) þannig að hann fékk sér kvöldmat! Þetta er sennilega slappasta hungurverkfall sem ég hef heyrt um!! Reyndar stóðu samverkamenn Sadda sig betur, en þeir slepptu 3 máltíðum! (sem mér finnst reyndar afrek, má ekki líða lengra en 4 tímar milli máltíða hjá mér þá er líkaminn búinn að lýsa yfir hungursneyð og ég verð líkeg til ofbeldis:-/) Jæja kallinn fær allavegna prik fyrir viðleitni, gengur kannski bara betur næst...
Ég nenni ekki að tala um leikinn í gær, fyrir utan það að Tryggivi Guðmundsson er sennilega leiðinlegasti leikmaður veraldar, óíþróttamannslegur með eindæmum! En ég nenni ekki að pirra mig á honum þar sem það eru viðbrögðin sem hann vill kalla fram hjá fólki, mjög þroskað...
Ég er sennilega lélegasti niðurpakkari sem sögur fara af! Er alveg í vandræðum með hvað ég á að taka með mér til Svíðþjóðar:-/ Tek fyrir það fyrsta ALLTAF of mikið með mér (en gleymi samt alltaf einhverju sem ég var búin að ákveða að taka með!) Og svo er ég að gera bara ráð fyrir sól og 30 stiga hita eins og verið hefur, en það er kannski vissara að taka föðurlandið með just in case, verð þá bara mjög töff í ullarnærfötunum á hliðarlínunni...
Handboltatelpurnar mínar hringdu í mig áðan af því að þær fengu ekki afslátt í Pumabúðinni eins og þær héldu að Valsarar ættu að fá (kríuðu svo reyndar út 5% afslátt). Ungamamman ákvað að tala við afgreiðslustelpuna og reyna að fá afsláttinn niður í 10% þar sem þær væru valsarar og voru 6 eða 7 saman að kaupa eins svitabönd (nauðsynlegt að lúkka vel á Partille cup;oþ), stelpan sagðist ætla að sjá hvað hún gæti gert. Svo talaði ég aftur við stelpurnar og þá voru þær víst búnar að kaupa böndin, en voru bara að hringja í mig til að KLAGA!! Hahaha, algjörar dúllur! Ég dó úr hlátri og hringdi aftur í afgr.stelpuna, sagði henni að hún þyrfti ekki að athuga með afsl. og þakkaði henni jafnframt fyrir þann afsl. sem hún gaf. Hehe, já hlutverk íþróttaþjálfarans er greinilega margþætt..!
Gotta go...
3 ummæli:
HAHA Saddam er klárlega ekki alveg með´etta... En það er ekkert að því að pakka of miklu.. Better save than sorry my friend ;)
Róóóa!
Skuldar mér löns fyrir þetta ... klárlega.
e
já ég viðurkenni það, þetta var lúalegt! En það er alveg kominn tími á löns, tek á mig að borga fyrir þetta langt-fyrir-neðan-belti-komment!!
Skrifa ummæli