miðvikudagur, júní 21, 2006

Úff já, spennufall held ég barasta! Var að fá bréf frá Háskólanum í Reykjavík og ég fékk inngöngu í íþróttafræðina í haust (íþróttaakademían) :oD Finnst "Bjarney Bjarnadóttir, íþróttafræðingur" bara hljóma nokkuð vel;o) Ég hlakka mjög mikið til að byrja, en skrýtið samt að vera að fara í háskólanám, hver hefði trúað því fyrir nokkrum árum?! hehe, en það virðist loksins ætla að rætast eitthvað úr mér!! ;oþ

Fór til augnlæknis í gær, vil ekki fara mikið til lækna þar sem ég er alltaf hrædd um að það sé ekkert að, vil ekki vera móðursjúka týpan! En ég hætti að geta notað linsur fyrir um ári síðan, og svo sá ég rauða bletti og eitthvað í auganu þannig að ég ákvað að better save than sorry og pantaði tíma. Here goes: ég er sem sagt með miklar bólgur í augnslímhúðinni (sem er víst oftast bara hjá fólki með mikið ofnæmi), einhver sogæðavökva við augað, 2 ör á hornhimnunni og blæðingar úr smáæðum. Og það var víst voða sérstakt því hún sá blóðið flæða, rauðu blóðkornin á sveimi, mjög töff! En þetta er ekkert hættulegt, fékk augndropa við slímhúðarbólgunni, en svo er ég með rosa þurr augu og droparnir þurrka þau enn meir þannig að ég fékk táradropa og recept fyrir smyrsli (ef táradroparnir eru ekki nóg) til að minnka þurkkinn. Blæðingar úr smáæðum eru ekkert mjög óalgengar, en koma oft fyrr hjá nærsýnu fólki og geta komið við höfuðhögg (skot í hausinn, skella með hnakkann í gólfið o.s.frv er alveg þekkt fyrirbæri úr minni fortíð, sem og annarra sem stundað hafa keppnisíþróttir!) Sem sagt, allt í toppstandi!! ;oþ

Jæja verð að rjúka, langaði bara að deila öllum gleðifréttunum með ykkur (háskólanám og slímhúðarbólgur, gerist ekki mikið betra:oD)

Later....

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Congrats með háskólann!!! þú átt eftir að rústa þessu dæmi:) eina leiðin til að tala við þig er með því að kommenta á bloggið..ekkert msn,sími eða face-to-face sem virkar hjá þér;) hehe

Nafnlaus sagði...

HÆ!!! Til lukku með þetta... Hey, ég þekki aðrar 2 sem eru að fara þarna með þér þannig að ef þú vilt vita 1hvað um þær þá bara að bjalla...:) Og ég held að ég verði að setja þetta skvass á hold í smá tíma allavega.... Hef aldrei á ævinni verið jafn BUSY og núna og ég er ekki að fíla það... hehe!

bjarneybje sagði...

varðandi hvað þá? Að kellan sé að setjast á skólabekk eða varðandi slímhúðarbólguna?? ;oþ

bjarneybje sagði...

hahahah já það er nokkuð til í því!!! hehe