mánudagur, júní 12, 2006

hæbbli

Var að þjálfa áðan og talið barst að stjörnumerkjum. Ég segi að ég sé vatnsberi og hún bara: "Ha í alvörunni? Ég hefði giskað á að þú værir meyja! Ert einhvern veginn með allt á hreinu" hehe já svona getur maður villt fólki sýn;oþ Hún er reyndar ekki búin að vera hjá mér mjög lengi, á sennilega eftir að sjá mitt rétta andlit! Sem ég reyndar hef ekki hugmynd um hvernig er, hef ekki verið þekkt fyrir að sjá sjálfa mig í réttu ljósi! Hef sennilega verið soldið "meyju-leg" þegar ég var í IKEA og Rúmfatalagernum að kaupa box undir vítamínin okkar, og svo þegar ég stóð og stjórnaði eldhússkápatiltekt eins og hershöfðingi! hehe, en ég þarf að meika smá speis fyrir dótið mitt, erum t.d núna komin með safapressuna góðu þannig að ég get byrjað að malla dýrindis kokteila aftur, ok reyndar virkar brokkolí, græn paprika og sellerí ekki sem sérlega girnileg blanda en hún er meinholl og það er nottla aðalatriðið, ég nota bara gömlu áfengisdrykkjutaktíkina, þ.e held fyrir nefið og þamba! ;oþ

jæja þá er næsti vetur kominn á hreint varðandi handboltaþjálfun, ætlaði að hætta en verð í staðinn með 2 flokka! hehe, þ.e aðalþjálfari í 4.flokki og aðst.þjálfari í unglingafl. sem verður snilld því þá verð ég aðst.þjálfari hjá Kalla Erlings sem var þjálfarinn minn í ÍR og ég fór með honum yfir í Val. Ég var fyrirliðinn hans í ÍR og þrátt fyrir að vera í 4.og 3.flokki þá var það hlutverk tekið ansi alvarlega! Eyddum ófáum klukkutímum í handboltatal, t.d ef ég keyrði hann heim þá voru það minnst 2 tímar sem fóru í vangaveltur varðandi þessi mál. Verður fróðlegt að sjá hvernig samstarfið mun ganga, ég allavegna hlakka til:o)

Vó ég er búin að vinna kl.4 í dag, veit ekki hvenær það gerðist síðast! Verð að reyna að finna mér e-ð að gera, æfði með Beggu í morgun, langt síðan ég hef lyft og hún nýkomin úr handboltatímabili, þó að hún hafi nú verið mjög dugleg að lyfta og æfa aukalega með, en við vorum búnar að ákveð að byrja af krafti í dag og sjæse, ég er strax farin að kvíða sperrunum:-/ Ég ætlaði svo að taka okkur í Cooper test á eftirn, en það féll niður vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Þannig að ég ætla þá bara að fara að skokka og eitthvað sjálf, mjög frjótt ímyndunarafl sem ég hef, æfing það mest spennandi sem ég finn uppá þegar ég hef ekkert að gera! hehe ég er nörd, ég viðurkenni það, en ég er allavegna hamingjusamt nörd;o)

Farin...

Engin ummæli: