sunnudagur, júní 11, 2006

sittlítið af hverju

Ég var búin að gleyma að ég ætlaði aldrei aftr í IKEA á sunnudegi! Af hverju finnst fólki það góð hugmynd að taka börnin sín með að versla?? Þeim drepleiðist og verða bara pirruð og pirrandi! En það voru hátt í 20 óléttar konur þarna inni! Sign? hehe neh held ekki, held ég hafi samt aldrei séð jafn margar ólétta konur á einum stað! Vona að þetta sé ekki smitandi, allavegna ekki alveg strax;o) Ég var s.s inní IKEA til að versla í búið, ég er orðin rosa húsmóðir! Hehe, held reyndar að Eysteinn samþykki það ekki eftir að ég reyndi að fara ein að versla í matinn:-/ Það er samt flókið að þurfa að versla oní einhvern annan en sjálfan sig!! Sem betur fer er hann jafn skrýtinn og ég í mataræðinu þannig að þetta slapp fyrir horn, sennilega af því að ég hringdi þrisvar og sendi 2 sms á meðan ég var að reyna að versla, mjög traust!

Nýjasta mismælið: kvennabolshlaup (átti að vera kvennahlaupsbol) dísús, nú verð ég að fara að byrja að hugsa áður en ég tala...

Held að Rúmfatalagerinn í Holtagörðum sé ein leiðinlegasta búð sem hefur verið fundin upp! pínu lítil og varla pláss fyrir fólk þar inni! Fann samt fullt af sniðugu sko;oþ

Jæja, læt í lokin fylgja hérna spurningalista sem Ragga Ásgeirs var svo hugulsöm að senda mér;o) Efast reyndar um að einhver nenni að lesa hann, en ég er allavegna búin að skila mínu;o)

Nafn: Bjarney Bjarnadóttir
Fæðingardagur: 10..02.79
stjörnumerki: vatnsberi
Þyngd: 64-5 kg
Hæð: 170 sm
Heimili: humm, eiginlega ekkert, á lögheimili á Hjaltabakka 24, en eyði mestum tíma á Eggertsgötunni
Foreldrar: Bjarni Sveinsson og Lára Aðalsteinsd.
Systkini Þórunn, Hulda og Sveinn Ingi
Íþróttir: Æfði fimleika og karate í 1-2 ár og spilaði handbolta í 12 ár en núna er það bara almenn líkamsækt,lyftingar, hlaup, skvass og fjallgöngur:oD
Draumastarfið: Er í því
Uppáhalds... Litur: Blár hefur verið uppáhalds í gegnum tíðina, svo skiptast hinir á, en er alltaf mjög hrifin af svörtu (sérstaklega svört föt, þau grenna mann nebbla;oþ)
Matur: Serrano
Drykkur: Vatn
Ávöxturinn þinn: græn epli og frosin vínber
Staðurinn þinn: hef það mjög gott á Eggertsgötunni, elska að vera úti í náttúrunni og svo líður mér reyndar mjög vel þegar ég er í ræktinni að æfa sjálf
Augnablik í lífinu: Allar stundir með Óskari Degi og svo hafa verið nokkur mjög góð uppá síðkastið:o)
Tónlistarmaðurinn: Gavin Degraw
Draumabíllinn: Yaris
Leikari: Ben Stiller
Þáttur: Horfi eiginlega ekki á sjónvarp, en fótboltakvöld hefur verið vinsælt uppá síðkastið;o)Bíómynd: million dollar baby kemur upp í hugann
Bók: Hámarks árangur eftir Brian Tracy
Dýr: Ég er algjör dýrasjúklingur, og langar mest af öllu að eiga allavegna 1 hund, og hest og kött, og svo hefur mig líka alltaf langað í lítinn apa og tígrisunga…
Hefurðu einhvern tíma.....
Strokið að heiman? Hehe, oft!
Valdið einhverjum ástarsorg? Já:-/
Verið ástfangin? óJá :oD
Grátið þegar einhver deyr? Já Langað í einhvern sem þú veist að þú getur ekki fengið? Öh ábyggilega
Brotið bein? Já, samt bara einu sinni eða tvisvar, sem er nokkuð vel sloppið miðað við hrakföllin sem ég hef afrekað!
Logið? Já, allavegna reynt, er sennilega lélegasti lygari á jarðríki, kemst alltaf upp um mig:-/
Trúirðu á...... Ást við fyrstu sýn? Nei, en trúi á hrifningu við fyrstu kynni
Guð? Já
Skrímsli? Bara Lordi skrímslin
Stjörnuspár? Jájá, eru fínar sem afþreying
Geimverur? nei
Drauga? Humm, allavegna einhver ástæða fyrir myrkfælninni minni:-/
Hvort er betra...
Coke eða Pepsi? Pepsi Max
Blóm eða nammi? NAMMI
Hávaði eða næði? Næði (vil samt hressa tónlist t.d þegar ég æfi, en er algjör einhverfupúki þess á milli)
Sundlaugar eða heitir pottar? Heitir pottar
Dökkhærðir eða ljóshærðir strákar? Rauðhærðir;o)
Buxur eða stuttbuxur? buxur
Hitt kynið......... Hverju tekurðu fyrst eftir? Brosinu og vaxtarlaginu (sorry ég vinn við það, eru ósjálfráð viðbrögð!)
Sítt eða stutt hár? Æ fer bara eftir týpunni
Göt einhversstaðar? Nei takk
Hver...
Fær þig til að hlæja mest? Páskadagur og Hurðarhúni
Fær þig til að brosa? Sama svar og að ofan
Hefur þú.... Setið við símann og beðið eftir símtali alla nóttina? Nei, svefninn minn er heilagur, og ég sé ekki hvað gæti verið það merkilegt að ég myndi vaka eftir því!
Óskað þess að þú værir önnur en þú ert? Eyddi mestöllum unglingsárunum í það
Óskað þess að vera karlmaður? Jebb, að meðaltali einu sinni í mánuði!
Óskað þess að líta öðru vísi út? já
Grátið vegna einhvers sem hefur sært þig? já
Séð eftir einhverju sem þú hefur gert? Úff já, þá víkjum við aftur að unglingsárunum! hehe Annað..
Myndirðu giftast vegna peninga? Nei
Plokkaru augnbrúnirnar? Já
Dreymir þig í lit eða svarthvítt? Ég veit það ekki, er oftast sofandi þegar mig dreymir!
Manstu fæðingu þína? Uhh...nei á maður að geta það??
Hvaða tungumál finnst þér fallegast? Langar að læra spænsku, en hef enga skoðun á fegurð tungumála
Hvort líkar þér betur við sólsetur eða sólarupprás?? Vil nú helst bara hafa sólina sem lengst á lofti, þannig að ég segi sólarupprás því þá er styttra í að maður geti farið aðwörka tanið;oþ
Hvort finnst þér betra að hafa slökkt eða kveikt á ljósunum þegar þú horfir ásjónvarpið? Vil helst hafa slökkt á sjónvarpinu, tilgangslaus tímaþjófur…
Trúirðu á töfra? Humm, nei held ekki
Færðu martraðir? stundum
Finnst þér nefið á þér fallegt? Finnst það nú ekki fallegt, en það er t.d minna skakkt eftir aðgerðina, og svo get ég andað með báðum nösum:oD þannig að ég er nokkuð sátt við það
Hlustaru á tónlist daglega? Já, kemst t.d ekki hjá því í vinnunni
Hvað áttu mörg skópör sem þú notar? Nota um 5 pör, en á sennilega um 20
Notarðu sömu skóna á hverjum degi? já oftast
Hrýturðu? Nei, held ekki
Hvernig finnst þér best að sofa? Á hlið í fósturstellingu, og það skemmir ekki að vera í fanginu á húnanum mínum
Hvort myndirðu vilja eiga púðluhund eða Rottweiler? Rottweiler
Hvort finnst þér betra að fara á fín veitingahús eða svona matsölustaði? Fer bara eftir stemmara
Hversu sítt er hárið á þér? Soldið niður fyrir axlir
Hvernig viltu að augun í þér séu á litin? Mættu vera með aðeins meira afgerandi bláum lit, eru half “döll” svona eins og er
Tekurðu einhver lyf? Bara vítamín
Ertu ánægð með nafnið þitt? jájá
Talarðu mikið? Hahaha JÁ

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég ákvað að byrja aðeins að lesa þetta og ætlaði bara svona rétt að tékka en var svo allt í einu bara búin! Ég held að ég þurfi að fara að finna mér líf... Eða kannski er þetta bara af því að ég á að vera að læra ;)

bjarneybje sagði...

hehe já, fólk í prófum getur fundið sér ýmislegt til dundurs! Svo geturðu jafnvel bara svarað þessum spurningum sjálf ef þig vantar fleiri verkefni á meðan þúrt í próflestrinum! ;oþ