Gerði mistök þegar ég sagðist vera hætt að vera dofin í tánnum, er háldofin í annarri stórutánni en alveg dofin í hinni, þetta má alveg fara að lagast...
Ferðin á Fimmvörðuhálsinn var blásin af vegna dræmrar skráningar:-/ Ætla að reyna að fara þarnæstu helgi, verst bara að Heia kemst ekki með mér þá:o( En það verður samt ekki slegið slöku við þrátt fyrir það, fer með herþjálfunina uppá Esjuna á laugardagsmorguninn, og svo með 5.flokks stelpurnar mínar í Kvennahlaupið eftir hádegi. Erum að safna áheitum á hvern hlaupinn kílómeter (erum 10 sem hlaupum 3 km hver, þannig að heitið er á 30 km) þannig að ef e-r vill styjka þær fyrir Partille cup ferð þá er bara að hafa samband, ég tek við áheitunum;o) Og svo ætlum ég og Heia, og kannski Þóra að fara á Keili á sunnudag. Fínt að halda sér við...
Er búin að vera föst í hægra hnénu frá því í gærkvöldi, mjög spes. Finnst eins og ég þurfi að láta e-ð smella, og svo þegar ég beygi þá finn ég einhverja sin eða eitthvað hreyfast þarna, plús það er smá vökvi. Vona að þetta fari að fara. Fór til sjúkraþjálfarans í gær, veiki fóturinn orðinn sterkari en hinn, hann sagði að ég væri greinilega búin að vera dugleg í endurhæfingunni minni:oD En hins vegar þarf ég núna að fara að leggja meiri áherslu á hinn (hægri fótinn sem er fastur eins og er) svo að hann dragist ekki meira aftur úr. Ég ræddi við hann um að byrja aftur í handbolta og hann sagði:"sko, yfirleitt er maður að hvetja fólk til að fara í íþróttir og hreyfa sig, en svo kemur stundum fólk eins og þú sem maður þarf að bremsa af!" (hann er reyndar sjúkrþjálfari nr.2 sem talar um þessa helv... bremsu:-/) en svo ræddum við um ávinninginn af því að byrja aftur og í rauninni einu rökin fyrir því að byrja eru að þetta er ógeðslega gaman! Rökin á móti eru hins vegar þau að ef ég meiðist aftur þá gæti komið til þess að ég þyrfti að ganga með hækju, alltaf. Gæti aldrei aftur gengið á fjöll o.fl. Ég held að hann hafi komið fyrir mig vitinu, er hætt að gæla við handboltadrauminn. Læt sokkaboltann með Eysteini duga...
Fór til neflæknisins áðan, og það fyrsta sem hann spurði var hvort ég væri í auglýsingu í sjónvarpinu. Hehe eðlilegt að læknarnir manns muni eftir manni! Læknirinn sem tók á móti mér uppá bráðamóttöku, þegar ég fékk sýkingu í nýrun 2003, heilsar mér ennþá ef við hittumst út á götu, helvíti hlýtur maður að vera eftirminnilegur! Held það sé af því að ég er svo mikið krútt ;oþ hehe eða kannski ekki:-/
oó gotta go, þjálfunin kallar...
5 ummæli:
Algjör dúlla! ;)
Takk fyrir hjálpina áðan.
Minnsta málið, alltaf gaman að fá að skipta sér af;oþ
HEIA NORGE!!!
Heja Sverige!!! ;)
þið eruð lúðar...
Skrifa ummæli