Jæja ætli ég verði ekki að horfast í augu við það að ég er komin í ofþjálfun:-/ Það kom alveg upp í hugann en ég streittist samt á móti, ég væri nú ekki að æfa svoooo mikið o.s.frv, hallaðist að því að þetta væri jafnvel bara aumingjaskapur þessi líðan en svo talaði ég við íþróttafræðing og las meira um þetta (þó að ég vissi það innst inni, var samt að vona að ég fyndi eitthvað um að þetta væri það ekki!) en einkennin eru öll til staðar, og hafa versnað mikið síðustu vikurnar :o( T.d gríðarlega vöðvaþreyta, bæði á æfingum og eftir þær, þolið versnar með hverju skiptinu sem ég fer út að hlaupa, eða t.d á Esjuna í gær, þá var ég alveg lömuð, hef fundið fyrir töluverðu lystarleysi (fannst það ekkert endilega slæmt, en ekki töff að verða óglatt við tilhugsunina um mat í lengri tíma, man að ég fékk líka svona tímabil í janúar, og kom engu niður, var líka orðin ansi létt þá)
En ætli ég verði ekki að vera soldið ströng við mig núna og neita mér um æfingar, ætla ekkert að æfa þessa vikuna og jafnvel að nota tímann í Svíðþjóð til að slaka, sem mér finnst reyndar sökka þar sem ég elska að fara að hlaupa á nýjum stöðum, lyfta á nýjum líkamsræktarstöðvum o.s.frv en það er jafnframt alveg ömurlegt að æfa og æfa, en uppskera ekki eins og maður sáir þar sem formið bara versnar og versnar:-/ Farin í verkfall...
Helgin var nokkuð strembin, en skemmtileg engu að síður. Á laugardagsmorgun fórum ég og Óskar Dagur í smá bíltúr uppá skaga þar sem Sindri var að keppa á Lotto mótinu, náðum reyndar ekki að sjá neinn leik með Grindavík en hittum Þórunni, Meyva og Andra og vorum aðeins að fíflast þarna í kring. Ótrúlega fyndið, þegar við vorum að labba í bílinn þá mættum við Eiði Smára, sem var alveg ótrúlega umburðarlyndur við krakkana að leyfa þeim að taka myndir með sér og sonna, þó að það sé gjaldið fyrir að vera frægur þá finnst mér samt alltaf virðingarvert þegar "fræga fólkið" gefur sér tíma í þetta. En já, svo löbbuðum við nánast við hliðina á Þorgerði Katrínu og Kristjáni Ara, og svo var Bjarni Ben að stíga útúr bílnum sínum þegar við löbbuðum framhjá. Hvar annars staðar en á Íslandi væri maður bara að mingla með ráðherrum og íþróttastjörnum, bara eins og sauðsvörtum almúganum?? hehe
En svo var ég mætt í brúðkaup kl.15, var að vísu boðið með sem viðhengi, vinur Eysteins að gifta sig, en Hulda systir var í sama brúðkaupi þar sem brúðurin er með henni í saumaklúbbi (enn og aftur víkjum við að smæð landsins!) eftir brúðkaupið, þar sem ég var að hitta vini Eysteins í fyrsta skipti, þá fórum við í útskriftarveislu hjá systir hans (sem var að vísu búin þegar við komum) og þar hitti ég foreldra Eysteins og systur í fyrsta skipti, þið getið ekki ímyndað ykkur pressuna sem sett er á mann á einum degi!!
Í gærmorgun byrjaði ég svo á að fara í neglur, vax, litun og plokkun, fór þaðan beint á Esjuna með 5.flokkinn minn og svo rúlluðum við austur (rétt hjá Laugavatni) í heimsókn til fjölskyldunnar hans Eysa, og ég hitt restina af familíunni. Skrýtið að maður hafi verið úrvinda í gærkvöldi!! Enda sofnaði ég á ca. nanósekúndu..!
Farin aftur, til hamingju ef þið nenntuð að lesa þetta alt;oþ
Engin ummæli:
Skrifa ummæli