miðvikudagur, júní 14, 2006

Hvað er að gerast??

Búin að vinna kl.17 í dag, þvílíka iðjuleysið í gangi þessa dagana! Reyndar búin að vinna non-stop frá 7:30, fyrir utan eina pásu sem var notuð til að spila skvass við Beggu. Notfærði mér svo valsstelpurnar mínar og sendi þær í spinning, sem ég kenndi sjálf þannig að ég sló 2 flugur í einu höggi, þ.e kem þeim og sjálfri mér í betra form;oþ Stelpurnar sem ég er að fara að vera aðst.þjálfari hjá í unglingaflokknum á næsta ári líst ekkert á að fá mig sem þjálfara! Ein tilkynnti mér í gær að hún væri hrædd við mig, önnur tók undir það og sagði að það væri af því að ég öskraði svo mikið (skil nú ekki alveg hvaðan það kemur?? hehe) en þær eru nú ekki hræddari við mig en það að þær sögðu það við mig, ég rabbaði bara við þær um að ég er mikið skap og öskrin eru aldrei nein persónuleg níð, ég er meira bara að öskra á þær að vera vakandi í vörninni og sonna. Held þetta verði allt í lagi, um leið og þær eru búnar að kynnast mér og sjá hversu ljúf ég er í raun og veru;oþ

Fimmvörðuháls um helgina, það verður vonandi stuð! Vona að það verði almennilegt veður, langar að fá að sjá útsýnið! Var samt næstum því búin að vona að ferðinni yrði aflýst aftur, svo mikið að gerast um helgina! Finnst samt leiðinlegast að beila á Beggu, og Heiu ef hún ætlar að halda e-ð, en hún á einmitt afmæli í dag þessi elska. Innilega til hamingju með afmælið Heia mín, þúrt algjörlega one of a kind, takk fyrir að vera til sæta mín;o*

Öh hef annars ekkert meira í fréttum, missi af Grindavíkurleiknum á morgun:-/ fyrsti leikurinn sem ég missi af, og það er enn súrara þar sem þeir eru að spila við Val! Hefði verið gaman að skella sér á völlinn, en svona er að vera í vinnu með abnormal vinnutíma, maður afsalar sér félagslegum réttindum!!

Jæja, er að spá í að fara að skokka aðeins fyrst ég hef ekkert annað að gera, sorglegt I know...

Engin ummæli: