Það er nú eiginlega bara rangnefni að kalla Kvennahlaupið KvennaHLAUP! Það var eiginlega labbað afturábak það var labbað svo hægt! En ég fann nú bara 2 af stelpunum mínum áður en hlaupið byrjaði, og við lögðum eiginlega síðastar af stað því við vorum að skimast um eftir restinni af hópnum, hlaupið er 2-5-7 og 9 km (sem ég hafði ekki hugmynd um! hélt það væru bara 3 km í boði, mjög traust!) en við ákváðum að fara bara 2 (ég verð að játa að ég var pínu lúin enda nýkomin niður ef Esjunni:-/) en ákváðum í staðinn að hlaupa bara hratt, enda vorum við með þeim fyrstu í mark:oD Sannaðist enn og aftur að þeir síðustu verða fyrstir!! ;oþ
Esjan var nú ekkert sérlega skemmtileg, mikil þoka og ógó kalt þarna efst en alltaf jafn gott þegar maður er kominn niður aftur! :oD Og spútnik göngumaður ferðarinnar var Egill (a.k.a Gillzenegger) sem arkaði fremstur í flokki og hélt uppi hröðu tempói. Við vorum viss um að hann myndi hníga niður eftir ca.200 m en það var sko öðru nær, rosa duglegur strákurinn;o)
Jæja, nenniggi meir, ætla að henda mér í sófann og horfa á fótbolta með kallinum, later...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli